157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

Samfélagsmiðlar, börn og ungmenni.

[16:25]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Um leið og ég vil þakka hv. þm. Skúla Braga Geirdal fyrir hans umræðu og samtalið hér þá vil ég bara fagna því að við erum að megninu til sammála hér í þingsal. Það er auðvitað alltaf víðtækt mál að fara að setja bann á samfélagsmiðla en nýlega kom í heimsókn til mín mennta- og barnamálaráðherra Noregs. Hún var á ferð til að hitta alla barnamálaráðherra á Norðurlöndum einmitt í þeim tilgangi að fá okkur í lið með sér til að taka á samfélagsmiðlum. Hún áttaði sig á því að saman erum við sterkari. Ég tel að það sé rétt að setja ákveðið bann vegna þess að við höfum gert þetta, við erum með samræmdar reglur um útivist barna sem hafa virkað virkilega vel hjá okkur og það kom meira að segja Norðmönnum á óvart að við værum með svona reglur og þær virkuðu. Ég segi alltaf að okkur ber skylda til að kenna og upplýsa börnin okkar um samfélagsmiðla og hvernig þau geta notað þá til góðs. En við þurfum líka að passa okkur á að kenna og upplýsa til að vernda þau gegn þeirri hættu sem er inni á þessum miðlum. Við vitum að þessir miðlar eru hættulegir. Við erum með ákveðnar reglur um t.d. kvikmyndir, myndir bannaðar fyrir 14 ára eða 16 ára, og það hlýtur að vera svolítið skrýtið ef við erum með bannað inn á kvikmynd fyrir 16 ára að á sama tíma megi 13 ára barn fara inn á samfélagsmiðla og horfa á nákvæmlega sama efni, það getur fundið það þar. Við verðum að samræma þetta. Ég held að við séum á réttri leið og ég ætla að vona að við verðum í samstarfi fljótlega með Norðurlöndunum um að ganga í þetta mál og sjá til þess að við ætlum að vernda börnin okkar vegna þess að það er tilgangurinn númer eitt, tvö og þrjú.