skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. Við vinnslu frumvarpsins var haft samráð við atvinnuvegaráðuneytið, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Seðlabankann, Skattinn, Náttúruhamfaratryggingu Íslands og Umhverfis- og orkustofnun vegna einstakra ákvæða frumvarpsins. Þessi bálkur, eða bandormur, tekur til um 15 efnisatriða og er þeim öllum gerð góð skil í ítarlegri greinargerð frumvarpsins. Ég mun því láta duga að stikla stuttlega á helstu atriðum.
Forseti. Fyrst vil ég nefna að skattfrádráttur vegna hlutabréfakaupa einstaklinga verður framlengdur um tvö ár. Í gildandi lögum er gert ráð fyrir því að einstaklingar geti nýtt sér frádrátt frá tekjuskattsstofni, að viðbættum fjármagnstekjum, vegna fjárfestinga á árunum 2016–2024. Með breytingunni nær frádrátturinn einnig til áranna 2025 og 2026. Rétt er að rifja upp að þessi skattfrádráttur er vegna fjárfestinga einstaklinga í nýsköpunarfyrirtækjum og smærri fyrirtækjum sem uppfylla tiltekin skilyrði.
Forseti. Í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var á dögunum var m.a. tilkynnt að lækka ætti frítekjumark af leigutekjum. Frumvarpið kveður því á um að frítekjumark fjármagnstekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði verði lækkað úr 50% í 25%. Skattskyldur hluti tekna af útleigu íbúðarhúsnæðis, sem nú er 50%, hækkar við það í 75% og virk skattbyrði leigutekna hækkar úr 11% í 16,5%. Þessi breyting er liður í því að draga úr skattalegum hvata einstaklinga til að beina sparnaði sínum í íbúðarhúsnæði umfram aðrar fjárfestingar og jafnframt að stuðla að auknu hlutleysi í skattlagningu leigutekna. Einungis er um að ræða tekjur af útleigu íbúðarhúsnæðis sem nýtt er til búsetu leigjanda og fellur undir húsaleigulög.
Forseti. Næst vil ég nefna að lagt er til að Happdrætti Háskóla Íslands verði undanþegið skattskyldu af fjármagnstekjum. Lagabreytingin er nauðsynleg til að breytt reikningsskil samkvæmt lögum um opinber fjármál bitni ekki á rekstri Háskóla Íslands. Til að framfylgja kröfum þeirra laga voru byggingar skólans færðar í sérstakt félag, Fasteignir Háskóla Íslands ehf., árið 2021 og greiðir háskólinn því félagi húsaleigu. Happdrætti Háskóla Íslands mun að óbreyttu greiða fjármagnstekjuskatt af vöxtum af fjármunum sem til stendur að happdrættið láni Fasteignum Háskóla Íslands ehf. í stað þess að leggja þá beint til Háskóla Íslands. Þar sem ekki stóð til að Háskóli Íslands yrði í verri stöðu fjárhagslega er gerð tillaga um þessa undanþágu frá skattskyldu af fjármagnstekjum.
Forseti. Næst er komið að breytingum á lögum um erfðafjárskatt en þær varða mat á virði hlutabréfa til stofns erfðafjárskatts og heimild til endurákvörðunar. Breytingarnar eru gerðar til að bregðast við nýlegum úrskurði yfirskattanefndar. Í málinu var m.a. komist að þeirri niðurstöðu að erfðafjárskattur af eignarhlut í félagi skyldi miðast við bókfært virði eiginfjár félagsins og að ekki hafi verið heimilt að gera leiðréttingar þannig að virði fasteigna í eigu félagsins væri uppreiknað til samræmis við skráð fasteignamat. Með breytingunni er ætlunin að skýra að erfðafjárskattur skuli eftir sem áður reiknaður af markaðsverði allra eigna, eða verði sem telja má að endurspegli markaðsverð eða því næst. Þá er gerð breyting sem snýr að því að í lögum um erfðafjárskatt komi skýrt fram að ríkisskattstjóri hafi heimild til endurákvörðunar.
Forseti. Tvær breytingar eru lagðar til á tollalögum, annars vegar til að bæta ákvæði um undirboðs- og jöfnunartolla og hins vegar um blandaðar tollvörugeymslur. Víkjum fyrst að undirboðs- og jöfnunartollum og þá sérstaklega ákvæðum um verndarráðstafanir. Grundvallarmarkmið þeirra er að veita innlendum framleiðendum svigrúm til að aðlagast breyttum markaðsaðstæðum með tímabundinni tollvernd við ákveðnar og ófyrirséðar kringumstæður. Með tillögum frumvarpsins um verndarráðstafanir er Ísland jafnframt að tryggja samræmi við skuldbindingar sínar samkvæmt samningi WTO, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, um verndarráðstafanir.
Síðari breytingin á tollalögunum varðar blandaðar tollvörugeymslur. Forsaga málsins eru sú að árið 2015 voru gerðar breytingar á tollalögum þar sem þrengt var að heimild tollyfirvalda til að veita leyfi til reksturs blandaðrar tollvörugeymslu, en gert var að skilyrði að þeir sem hlytu slíka heimild störfuðu í þeim tilgangi að veita öðrum ótengdum aðilum þá þjónustu sem fælist í rekstri tollvörugeymslu. Til að skýra stöðu þeirra sem þegar höfðu fengið slíkt leyfi, var kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði við tollalög að þeim aðilum sem þegar höfðu fengið leyfi, yrði áfram heimilt að reka blandaða tollvörugeymslu til 1. janúar 2026. Hér er lagt er til að bráðabirgðaákvæðið verði framlengt um þrjú ár til að veita stjórnvöldum og tollgæslunni svigrúm til að greina fyrirkomulagið betur áður en tekin verður endanleg afstaða til þess hvort fyrirkomulagið henti til framtíðar.
Forseti. Í frumvarpinu er lögð til breyting á gjalddaga innviðagjalds en það er lagt á skemmtiferðaskip í millilandasiglingum. Uppgjörstímabil innviðagjalds hjá rekstraraðilum skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum er sá tími sem skipið er innan tollsvæðis íslenska ríkisins hverju sinni. Gjalddagi er í dag sjö dögum eftir að skip yfirgefur tollsvæði ríkisins. Góð reynsla er komin á gjaldtökuna og framkvæmd við álagningu og innheimtu hefur gengið vel. Hins vegar hefur verið bent á að tíminn frá lokum hvers uppgjörstímabils fram að gjalddaga þess væri óþarflega stuttur. Af þessu tilefni er lagt til að gjalddagi innviðagjalds verði 15 dögum eftir að skip yfirgefur tollsvæði ríkisins í stað sjö daga eins og nú er.
Forseti. Það er mér sérstakt gleðiefni að geta lagt til að lög um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs verði felld úr gildi og starfsemi sjóðsins leggist þar með formlega niður. Þetta er lokaáfanginn í þessu stóra og erfiða máli sem leitt var til lykta fyrr á þessu ári. Í fjárlögum er þegar heimild fyrir fjármála- og efnahagsráðherra til að ganga til samninga um skipti á eignum við sjóðinn og til að gera upp fyrirliggjandi ríkisábyrgð á skuldum ÍL-sjóðs með útgáfu ríkisskuldabréfa. Í samræmi við það er gerð tillaga um að eftirstandandi réttindi og skyldur ÍL-sjóðs færist yfir til ríkissjóðs. Nauðsynlegt er að í lögum sé kveðið á um að ríkissjóður komi að öllu leyti í stað ÍL-sjóðs þegar kemur að réttindum og skyldum. Vegna brottfalls laga um ÍL-sjóð þarf jafnframt að gera breytingar á nokkrum lögum þar sem vísað er sérstaklega til sjóðsins.
Forseti. Í frumvarpinu er lagt til að heimila Náttúruhamfaratryggingu Íslands að innheimta iðgjöld með álagi ef vátryggingarfjárhæð fer upp fyrir tilgreind viðmiðunarmörk. Við lögin um Náttúruhamfaratryggingu Íslands bætist nýtt ákvæði sem heimilar þeim, sem eiga vátryggða muni sem nýtt viðmið frumvarpsins um beitingu álags nær yfir, að vátryggja þá annars staðar. Jafnframt bætist við lögin ákvæði sem veitir stjórn NTÍ heimild til að innheimta iðgjöld af munum sem tilheyra atvinnustarfsemi með álagi ef vátryggingarfjárhæð þeirra fer upp fyrir 5% af greiðsluskyldu NTÍ. Markmið breytinganna er að stuðla að virkari áhættustýringu stofnunarinnar og tryggja um leið fjárhagslegan grundvöll hennar og getu til að standa við skuldbindingar sínar. Breytingarnar munu ekki hafa áhrif á meginþorra atvinnurekenda. Þeir atvinnurekendur sem eiga veruleg staðbundin verðmæti gætu orðið fyrir áhrifum af breytingunum á þann hátt að einstakar staðbundnar áhættur þeirra verði ekki vátryggðar samkvæmt lögunum nema álagi verði bætt við iðgjöld af slíkum vátryggingum.
Forseti. Næst vík ég að breytingum á lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótín o.fl. Þar er markmiðið að festa betur í sessi framkvæmd við álagningu og innheimtu gjaldanna. Með breytingunum er grundvöllur álagningarinnar enn fremur styrktur með því að taka upp í lögin ákvæði um gjalddaga og uppgjörstímabil sem nú er að finna í reglugerð um áfengisgjald. Einnig er lagt til að kveðið verði skýrar á um hver er álagningar- og innheimtuaðili samkvæmt lögunum. ÁTVR sér um álagningu og innheimtu á tóbaksgjaldi á tóbaksvörur sem eru til sölu innan lands og er það í samræmi við einkarétt ÁTVR til heildsölu á tóbaki hér á landi. Í öðrum tilvikum verður það ríkisskattstjóri sem leggur á gjöldin, þar með talið í tilviki tollfrjálsra verslana. Þá er enn fremur lagt til að þegar ríkisskattstjóri leggur á gjöldin verði innheimta þeirra eingöngu í höndum hans. Markmiðið er að auka skilvirkni og tryggja betra samræmi í innheimtuaðgerðum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir auknum kröfum til tollfrjálsra verslana sem selja gjaldskyldar vörur til komufarþega til að styrkja enn frekar stoðir eftirlits tollyfirvalda. Nauðsynlegt er að gera meiri kröfur til aðila sem reka tollfrjálsar verslanir fyrir komufarþega þar sem selt er áfengi, tóbak og nikótínvörur, því þeir eru með gjaldskyldar vörur í sinni vörslu. Geymslusvæðum fyrir ótollafgreiddar vörur fylgja kröfur um skráningu þeirra í tollkerfið sem veitir betri yfirsýn yfir það sem fer inn á geymslusvæðið og hvað fer þaðan.
Forseti. Í frumvarpinu eru að lokum lagðar til nokkrar minni breytingar á ýmsum lögum. Í fyrsta lagi hækkun á frítekjumarki hjá börnum undir 16 ára aldri, en umrædd viðmiðunarmörk hafa haldist óbreytt frá árinu 2013. Lagt er til að frítekjumarkið verði 300 þús. kr. á ári í stað 180 þús. kr. eins og nú er. Hækkunin kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2027 vegna tekna ársins 2026 og við staðgreiðslu opinberra gjalda á því ári.
Í öðru lagi er lagt til að þeir sem stunda hvers konar þjónustu sem tengist viðskiptum með sýndareignir skuli afla og skila þeim upplýsingum sem ríkisskattstjóri óskar um viðskiptin. Lagabreytingin er lögð til í kjölfar yfirlýsingar stjórnvalda um þátttöku í upplýsingaskiptum á þessu sviði. Upplýsingaskyldan mun byggjast á alþjóðlegu regluverki sem var unnið af OECD. Þeim upplýsingum sem innlendir þjónustuveitendur skila til skattyfirvalda og tengjast sýndareignum erlendra aðila verður deilt með skattyfirvöldum viðkomandi landa. Með sama hætti munu íslensk skattyfirvöld fá upplýsingar um viðskipti með sýndareignir íslenskra aðila.
Í þriðja lagi er lagt til að við lög um tekjuskatt verði bætt nýju bráðabirgðaákvæði þess efnis að réttur þeirra aðila sem fluttu til Bretlands fyrir Brexit og njóta réttar samkvæmt útgöngusamningi Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu sé tryggður í íslenskum lögum. Að óbreyttu getur sú staða komið upp að aðili njóti réttar samkvæmt útgöngusamningnum en ekki samkvæmt okkar lögum um tekjuskatt. Þykir því rétt að gera breytingu þannig að réttindin séu tryggð, m.a. varðandi barnabætur.
Í fjórða lagi er gert ráð fyrir því að ákvörðun álags samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda verði breytt til samræmis við lög um virðisaukaskatt og með því skilið á milli álags og beitingar dráttarvaxta vegna síðbúinna skila á staðgreiðslu. Það er eðlismunur á álagi, sem er ein tegund refsikenndra viðurlaga, og vöxtum sem reiknast af ógreiddri peningakröfu.
Í fimmta lagi er lagt til að ákvæði um sérstaka eftirlitsnefnd með lánveitingum til rekstraraðila á tímum kórónuveirufaraldursins verði felld brott. Sama gildir um ákvæði sem undanþiggur viðbótarlán gildissviði laga um ríkisábyrgðir.
Í sjötta og síðasta lagi gert ráð fyrir eins árs framlengingu á gildistíma EE-liðar ákvæðis til bráðabirgða í búvörulögum þannig að það gildi út árið 2026. Í ákvæðinu er kveðið á um tímabil sem afmarka lægri innflutningstolla á tilteknar tegundir grænmetis.
Forseti. Að síðustu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til frekari umfjöllunar að lokinni þessari umræðu.