skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar að staldra við eitt atriði sérstaklega, sem er skattahækkun og því miður ekki sú eina sem er á borði þessarar ríkisstjórnar. Í því frumvarpi sem hér um ræðir segir að frítekjumark fjármagnstekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði skuli lækkað úr 50% í 25%. Það þýðir kannski í aðeins einfaldara máli að virk skattbyrði leigutekna mun þar með hækka úr 11% í 16,5%, þannig að ég vil í mínu fyrra andsvari að fá að spyrja hæstv. ráðherra: Telur ráðherra líklegt að þessi skattahækkun muni hækka leiguverð?