skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég tel nú rétt að taka fram í upphafi að ég var ekki að spyrja um áhrifin á vísitöluna heldur einfaldlega á leiguverðið sjálft þar sem eingöngu sú staða, það sem fólk greiðir fyrir leigu sína, er nægt áhyggjuefni, burt séð frá öðrum afleiddum áhrifum svona hækkana. Hér er rétt að taka fram, frú forseti, að hér er ekki um að ræða risastóru aðilana á markaðnum sem eru í miklum viðskiptum og leigja út fjölda íbúða. Við erum að tala um einstaklinga sem eru kannski með eina íbúð til útleigu, jafnvel til einhverra sem þau þekkja. Hérna er verið að varpa auknum kostnaði á í rauninni þessa litlu einstaklinga. Ég vil því í mínu seinna andsvari spyrja: Er það ekki ríkisstjórninni kappsmál og telur hún það ekki jákvætt að einstaklingar fjárfesti í svona fasteignum sem enda líka á leigumarkaðnum og geta aðstoðað við að auka fjölbreytileika og fjölda leiguíbúða þar? (Forseti hringir.) Ef það er svo að tekjuáhrif þessarar breytingar séu um 1,5 milljarður, er það virkilega þess virði (Forseti hringir.) að taka áhættu með að hækka leiguverð og gera aðilum á leigumarkaði enn þá erfiðara fyrir?