157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir spurninguna. Nú getum við rætt fram og til baka um það að hve miklu leyti breytingar á sköttum birtast í verði. Þetta getur ekki á sama tíma hækkað leigu og rýrt kjör þeirra sem leigja út húsnæði. Ef þeir geta að öllu leyti velt þessum kostnaði yfir í verðlagið þá verða þeir auðvitað ekki fyrir tjóni. Ef spurningin er síðan hvort fjárfesting í húsnæði sé heppileg og að heppilegt sé að niðurgreiða hana sérstaklega þá er tilfellið að eftirspurn eftir húsnæði, þá alveg sérstaklega því húsnæði sem er líklegast til að lenda í leigu, sem eru ódýrustu íbúðirnar, er mjög mikil og tækifærin til fjárfestinga í atvinnulífi umtalsverð þannig að sú pólitíska stefna almennt að niðurgreiða (Forseti hringir.) þessa tegund fjárfestinga er eitthvað sem ég held að sé full ástæða til að velta fyrir sér og gagnrýna.