157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:11]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Það er margt í þessu frumvarpi sem ég slæ varnagla við en það tók eiginlega steininn úr í c-lið 11. gr., um breytingu á lögum um erfðafjárskatt, en þar stendur orðrétt í lok greinarinnar, með leyfi forseta:

„Þá skal bæta við verðmæti óefnislegra eigna og réttinda sem metin verða til fjár og gefa af sér arð í framtíðinni en óheimilt er lögum samkvæmt að færa til bókar.“

Hvað er verið að segja hér? Það er nú eiginlega fyrsta spurningin. Er verið að segja að það eigi að taka tillit til mögulegs framtíðarvirðis sem er reyndar ólöglegt að færa til bókar? Á fólk að gerast spámenn um mögulegan arð í framtíðinni? Sennilega gera allir sem stofna fyrirtæki ráð fyrir að af því verði arður í framtíðinni, annars myndu þeir ekki fara af stað, en við vitum að það er ekki raunin á endanum. Þetta dæmi minnir mig á einn hlut, forseti. Þetta minnir mig á svokallað Enron-mál, þar sem allt var blásið upp í bókunum af því að þeir mátu eitthvert virði sem var ekki raunverulegt. Er ríkisstjórnin að leggja til einhvers konar Enron-aðgerðir hérna? Það er fyrsta spurningin, ef hæstv. ráðherra gæti aðeins farið yfir þetta.

Svo af því að ég hef smá meiri tíma þá er ég með nokkrar spurningar í viðbót. Í þessu frumvarpi er nefndur skattalegur ávinningur einstaklinga. Hvað þýðir það, skattalegur ávinningur einstaklinga? Ég velti fyrir mér hvenær það gæti átt við. Gæti það átt við í þeim tilfellum þar sem við borgum minni skatta en fáum meiri þjónustu frá kerfinu? Hvenær er skattalegur ávinningur? Hvenær væri rétt að nota það orð svo það endurspeglaði það sem sagt er? Nú er tíminn á þrotum þannig að ég kem með frekari spurningar í seinna andsvari.