skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir spurningarnar. Þessar breytingar á lögum um erfðafjárskatt eru í kjölfar úrskurðar yfirskattanefndar sem féll eins og þessi ákvæði segja til um. Þarna var um opnar og ekki nægilega skilgreindar greinar að ræða í lögum. Það er einungis verið að fylgja eftir þeim úrskurðum. Án þess að ég sé neinn sérfræðingur á því sviði þá tel ég nú að efasemdir um getu skattyfirvalda til að draga mörk í þessu efni séu óþarfar og ég hef í sjálfu sér litlu við það að bæta.
Varðandi skattalegan ávinning einstaklinga þá eru tvö dæmi í frumvarpinu um slíkan ávinning sem er þá ávinningur einstaklinga umfram aðra aðila, lögaðila, og á við um afslátt á fjármagnstekjuskatti vegna leigutekna annars vegar, sem er þá skattalegur ávinningur einstaklinga. Í hinu tilfellinu — já, nú týndi ég þræðinum, en skattalegur ávinningur einstaklinga er þegar það eru ívilnandi ákvæði í reglum sem gefa afslátt frá skattheimtu sem aðrir aðilar eru háðir, t.d. lögaðilar.