157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:15]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ekki viss um að það sé umfram aðra lögaðila eins og hæstv. ráðherra sagði því að allir geta nýtt sér þetta sem eru að kaupa fasteign. Allir geta það í dag. Þetta er einhver hluti af orðagjálfri að mínu mati og verið að reyna að villa um hvað raunverulega er verið að gera eins og er mjög oft í þessu frumvarpi.

Varðandi Enron-málið sem ég minntist á áðan þá sagði hæstv. ráðherra að verið væri að fylgja eftir úrskurði yfirskattanefndar. Þetta langar mig aðeins að ræða. Er það sjálfsagt að ef Skatturinn tapar máli þá geti hann hringt í fjármálaráðuneytið og látið breyta lögunum þannig að þau verði eins og Skatturinn kaus að túlka lögin? Getur verið að lögin hafi verið í lagi áður, Skatturinn túlkað þau rangt, yfirskattanefnd leiðrétti það? Það getur ekki staðist að við eigum að gefa upp eitthvert ímyndað framtíðarvirði — og hvað á það að vera langt inn í framtíðina? Um ókomna framtíð?