157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir spurninguna. Það er sem sagt meginregla í mati skattyfirvalda á virði eigna að miða við markaðsverð og það sem er verið að gera hér er að festa í sessi þessa meginreglu, miða sem sagt við markaðsverð … (NMG: … óefnislegra?) — markaðsverð óefnislegra eigna þá sem annarra eigna og það er í sjálfu sér fullkomlega eðlilegt. Hv. þingmaður nefndi Enron í þessu samhengi. Ég minni hv. þingmann á að markaðurinn verðlagði þær óefnislegu eignir á endanum á verðinu 0.