skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Mig langar að ræða við hæstv. fjármálaráðherra um börnin blessuð. Hér er gerð tillaga, sem ég í sjálfu sér fagna, um að hækka frítekjumark barna og löngu tímabært að gera það. En þessi tillaga gengur hins vegar afar skammt í því að rétta af skattbyrði barna. Hér er ég að tala um börn undir 18 ára aldri sem ekki njóta persónuafsláttar. Þannig hefur það verið. Þannig er staðan í dag að börn geta í dag unnið fyrir einar 15.000 kr. án þess að borga skatt en með þessari breytingu geta þau unnið fyrir 25.000 kr. án þess að greiða skatt.
Mín spurning lýtur að vinnuframlagi barna eða þeirra sem eru undir 18 ára í ljósi nýrra aðstæðna og breyttra aðstæðna, ég nefni sérstaklega börn sem hafa tekið að sér í ríkum mæli þjálfun á vegum íþróttafélaga og halda í rauninni uppi starfi íþróttafélaganna að mörgu leyti þegar kemur að þjálfun ungra iðkenda. Ég segi 25.000 kr. á mánuði, auðvitað er mismunandi hvað krakkar leggja mikið á sig og ekki ætla ég að hvetja ungmenni til að leggja líf sitt við atvinnu, ekki einu sinni þjálfun í íþróttum, á meðan þau eru í skóla. En þetta hefur samt gagnast bæði þessu unga fólki sem er að taka sín fyrstu skref í atvinnulífinu, að sinna t.d. þessari þjálfun, ég tek þetta bara sem dæmi, þetta er svo algengt, og ég held að íþróttafélögin reiði sig mjög á framlag ungra starfsmanna að þessu leyti. Mín spurning lýtur að því hvort það hafi ekki komið til greina að veita hreinlega þessum ungmennum persónuafslátt. Með persónuafslætti gætu þessi börn unnið fyrir 200.000 kr. án þess að greiða skatta eins og við öll sem hér erum inni. En með þessari breytingu (Forseti hringir.) munu þau einungis geta unnið fyrir 25.000 kr. án þess að þurfa að fara að greiða skatt.