157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið og ef ég greini rétt hug hans þá er hann a.m.k. opinn fyrir því að hv. efnahags- og viðskiptanefnd taki þetta mál sérstaklega til skoðunar og kanni hvort ekki sé eðlilegt að hækka þessi mörk enn frekar til þess einmitt að mæta aðstæðum, eins og ég lýsti í fyrra andsvari mínu.

Ég ætla hins vegar líka að koma inn á þessa lækkun á frítekjumarki eða hvað maður á að kalla þetta, þ.e. b-lið 2. gr. og 3. gr. varðandi húsaleigutekjur. Ástæðan fyrir því að leigjendur hafa fengið, má segja, afslátt af fjármagnstekjuskatti að þessu leyti, er fyrst og fremst sú að þeir hafa ekki getað reiknað kostnað á móti leigu. Hefur hæstv. fjármálaráðherra ekki áhyggjur af því eða sér hann það ekki fyrir sér sem óvænta hliðarafleiðingu af þessari breytingu, að fasteignaeigendur sem eiga aðra íbúð eða fasteign sem þeir leigja út (Forseti hringir.) færi hreinlega slíkar fasteignir inn í félög til þess að mæta hækkun á fjármagnstekjuskatti? (Forseti hringir.) Með því að færa þær inn í félög geta þeir auðvitað reiknað sér á móti skattinum kostnað sem til fellur.