skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir ræðuna. Í henni kom glögglega fram að hún er ekki alls kostar ánægð með mig en ég má kannski ekki við því búast. Mig langar að taka örlítið og stuttlega til varna og benda á að tekjur ríkissjóðs og útgjöld á tímabili fjármálaáætlunar munu dragast saman sem hlutfall af vergri landsframleiðslu sem erfitt er að ramma inn sem skattahækkanir og jafnframt hefur ríkisstjórnin sett stöðugleikareglu sem setur útþenslu ríkisins mjög skýr mörk en útþensla ríkisins undir undangengnum ríkisstjórnum hefur verið umtalsverð. Ég sakna þess að hún fagni ekki slíkum breytingum.
Ég vil líka benda á að séreignarsparnaðarleiðin, sem hv. þingmaður mærði og full ástæða til, er núna fest í sessi til lengri tíma en hún hefur hingað til verið framlengd um eitt ár í einu. Margítrekað, þar með talið af síðustu ríkisstjórn, hefur verið lagt til að hún gengi sitt skeið. En það er þó verið að festa hana í sessi.
Mig langar til að víkja hér í spurningum að forsendunum fyrir afslætti á fjármagnstekjuskatti til einstaklinga. Hvers vegna ættum við að hafa slík fríðindi? Varla er það til að lækka leiguverð í ljósi þess að einungis um 20% af leiguhúsnæði er í eigu einstaklinga. Langsamlega stærstur hluti þess er í eigu annarra lögaðila. Mig langar líka að spyrja hv. þingmann hvernig hún finnur það út að þetta muni draga úr framboði íbúðarhúsnæðis í ljósi þess að hún spáir því á sama tíma að þetta muni leiða til hækkunar á leigu (Forseti hringir.) sem ætti að ýta undir framboð á húsnæði.