157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:40]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég verð að viðurkenna að ég varð aðeins hugsi yfir fyrri hluta hans andsvars því að þó að tekjur af landsframleiðslu dragist saman er vel hægt að hækka skatta engu að síður. Ég áttaði mig ekki alveg á þessum útúrdúr. Eins með stöðugleikaregluna sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins var á sínum tíma á móti þar sem okkur fannst ekki alveg gegnsætt hverju það myndi stuðla að. Við hefðum miklu frekar viljað sjá skýrari útgjaldareglu svo það væri einmitt ekki hægt að hækka skatta og kalla það stöðugleika. En það er kannski önnur umræða.

Varðandi seinni hluta hans andsvars um þennan litla hluta leigutekna. Mig langar að spyrja á móti: Er hæstv. ráðherra að segja að þetta sé ekki mikilvægur póstur í þessari flóru sem leiguíbúðamarkaðurinn hefur yfir að bjóða? Er ekki eitthvað ankannalegt við það að það sé verið að, ég ætla að leyfa mér að orða það þannig, ráðast á þann anga sem er haldið uppi af einstaklingum, einyrkjum, einstaka fjölskyldum með sínar aukaeignir sem þau setja í leigu? Hér er ekki verið að tala um stóru leigufélögin. Hérna er verið að tala um ákveðinn hluta af leigumarkaðinum, 20% er nú alveg dágott, og hér er eingöngu verið að hækka leigu hjá þeim aðilum sem einmitt kannski síst skyldi.

Frú forseti. Skiptir það máli fyrir viðkomandi leigjanda sem er að fá á sig hærri leigu hvort leigusalinn sé leigufélag eða einyrki? (Forseti hringir.) Leigjandinn sjálfur upplifir það að ríkisstjórnin sé að grípa til aðgerða sem munu hækka hans leiguverð.