skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir svarið sem ég verð nú að viðurkenna að hún vék sér fimlega undan að veita. Ég var að spyrja: Hvernig getur það verið satt á sama tíma að leigan hækki og þetta hafi neikvæð áhrif á framboð? Ég get ekki séð í fljótu bragði hvernig þetta tvennt getur verið satt á sama tíma. Látum það liggja milli hluta.
Í andsvari sínu nefndi hv. þingmaður einnig að Sjálfstæðismenn hefðu lagt til útgjaldareglu, en stöðugleikareglan er útgjaldaregla. Það kemur þess vegna aðeins á óvart að þetta sé einhvern veginn túlkað þannig að þetta sé ekki útgjaldaregla. Það er hún svo sannarlega og mjög skýrt.
Mig langar síðan til þess að gera smá athugasemd við ræðu hv. þingmanns þar sem talað var um að ekkert væri í þessu frumvarpi, sem þó er kannski bandormur og ekki beinlínis eitt af fegurstu verkum ríkisstjórnarinnar, fyrir atvinnulífið. Ég vil benda á í þessu samhengi framlengingu á rekstri blandaðra tollvörugeymslna sem hefur gefist ákveðnum fyrirtækjum ákaflega vel, tillögur um innleiðingu á ákvæðum sem heimila íslenskum stjórnvöldum að setja verndartolla fyrir íslenskt atvinnulíf ef það verður fyrir ósanngjarnri samkeppni eða áfalli, sem hlýtur að vera jákvætt fyrir atvinnulífið, og framlengingu á skattafslætti vegna kaupa á hlutabréfum í nýsköpunarfyrirtækjum.