157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:44]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra hans seinna andsvar og þá grjóthörðu hagfræðideilu sem við virðumst komin í. [Hlátur í þingsal.] Ég veit ekki alveg hversu langt ég treysti mér í að elta ólar við þetta. Ég ætla að leyfa mér að segja að þegar hæstv. ráðherra spyr hvernig ég geti fullyrt að hærra leiguverð minnki framboð, þá ætla ég að spyrja til baka: Getur hæstv. ráðherra fullyrt að svo verði ekki? (Gripið fram í.)Hæstv. ráðherra mun ekki hafa tækifæri til þess og guðs lifandi feginn ef ég á að giska. [Hlátur í þingsal.] En auðvitað vitum við öll hér að hér er ekki um einhvers konar kartöflur að ræða. Þetta snýst ekki bara um hvað eitthvað kostar í dag og hvað það kostar á morgun. Hér eru miklu, miklu flóknari kraftar á ferðinni. Segjum sem svo að þessi aukni skattur fari ekki í leiguverðið, þá er það mjög gott fyrir leigjendurna og gott og vel þótt hitt sé langlíklegasta sviðsmyndin. Þá vitum við líka, alveg eins og öll leiguþök heimsins hafa sýnt okkur ítrekað, að það hefur einfaldlega orðið til þess að það er minna framboð af viðkomandi íbúðum. Fjárfestingarkostirnir fara einfaldlega eitthvert annað. Það er minna fjármagn eftir til þess að viðhalda þessum íbúðum og svo lengi mætti telja.

Ég ætla ekki að endurtaka rifrildi okkar ráðherra um stöðugleikaregluna sem þeir mega bara halda áfram að kalla stöðugleikareglu, það er gott og vel. Ég ætla bara að ítreka einu sinni enn að við Sjálfstæðismenn myndum frekar vilja sjá miklu skýrari og harðari útgjaldareglu þar sem er heldur ekki jafn mikið tekið út fyrir sviga eins og raun ber vitni í þeirri stöðugleikareglu sem ríkisstjórnin hefur sett fram núna, hvort það var síðasta vor.

Ég vil að lokum fá að segja að mér þykir áhyggjuefni ef það á að vera svo léttvægt tekið og að það sé deilumál að inngrip á svona skatti á svona viðkvæmum markaði hafi ekki áhrif. Það er réttmætt að hafa áhyggjur af því.