skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Við ræðum frumvarp sem inniheldur 39 greinar, flestar með nokkrum undirgreinum, og allt til breytinga á lögum. Frumvarpið kemur engu að síður mjög seint inn og á eftir að fara í gegnum eðlilega þinglega meðferð og á að verða að lögum fyrir áramót. Ég legg til, frú forseti, að hæstv. ráðherra stuðli að því í sínu ráðuneyti að við séum ekki að vinna svona risastór mál í tímaþröng. Hér hafa vikur og mánuðir liðið án þess að mikið af stjórnarfrumvörpum hafi komið inn í þingið og því hefði verið upplagt að svona bandormur kæmi inn fyrr.
Þetta frumvarp, eins og flestir bandormar, inniheldur eitthvað af jákvæðum breytingum en fullt af öðru sem er ekki eins gott. Það sem bandormsfrumvörp eiga líka sameiginlegt er að það þarf að skoða þau gaumgæfilega til að átta sig á hvaða breytingar er verið að gera og ekki er nóg að lesa bara greinargerðina því hún teiknar upp þá mynd að allar breytingar frumvarpsins séu frábærar og til bóta. En það er aldeilis ekki svo. Til að nefna dæmi um af hverju ég tel að það sé gott fyrir þingheim og þá sem heima sitja að fara aðeins ofan í saumana á því hvaða breytingar er verið að gera, þá segir í 2. gr. frumvarpsins:
„Eftirfarandi breytingar verða á 66. gr. laganna:
a. Í stað fjárhæðarinnar „180.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 300.000 kr.
b. Í stað „50%“ í 4. málsl. 3. mgr. kemur: 25%.“
Við vitum ekkert um hvað er verið að fjalla, þetta segir okkur ekkert. Oftast er fljótlegt að finna út úr því hverju er verið að breyta með frumvörpum en í bandormi þar sem eru ótal svona dæmi veitir ekki af að skoða málið aðeins betur. Ég ætla að reyna að gera tilraun til þess hérna.
Fyrst er fjallað um þær breytingar sem á að gera á lögum um tekjuskatt. 1. gr. er bara hefðbundið framlengingarákvæði en svo kemur 2. gr., hún er tvískipt. Í fyrri hlutanum á að hækka árlegt frítekjumark barna undir 16 ára aldri, sem er gott mál enda hefur upphæðin verið óbreytt frá 2013. Hún fer úr 15.000 kr. á mánuði í 25.000 kr. á mánuði. En það væri heppilegra að breyta þessu þannig að börn yngri en 16 ára fái persónuafslátt eins og aðrir í stað þess að vera í sérkerfi. Annars gætu til að mynda 15 ára börn sem eru að þjálfa eða taka að sér önnur launuð verkefni verið í þeirri stöðu að borga hærri skatta en 16 ára börn sem fá jafn há laun. Það er skekkja sem virkilega þarf að skoða.
Seinni hluti 2. gr. snýr að skattahækkunum og er hluti af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Auðvitað er ekki minnst á orðið skattahækkun í greinargerðinni enda ætlaði þessi ríkisstjórn ekki að hækka skatta á almenning og fyrirtæki. Það loforð er vissulega löngu fokið út í veður og vind þannig að það eru fundin ný orð og talað í kringum hlutina. Núna greiða einstaklingar 11% skatt af leigutekjum, en eftir breytinguna er borgaður 16,5% skattur. Skatturinn hækkar um 5,5 prósentustig eða 50%. Það mun ýta undir að einstaklingar færi eignir sínar í félög, sem er í lagi, en er það betra fyrir markaðinn? Er það tilgangur stjórnvalda? Stjórnvöld virðast í hverju skrefi stuðla að fækkun leiguíbúða og þar með hærri húsaleigu. Á sama tíma er ekki verið að taka skref til að hjálpa fólki að eignast eigið húsnæði.
Höldum áfram með frumvarpið. Það er komið að því að lagt er til að Happdrætti Háskóla Íslands verði undanþegið skattskyldu af fjármagnstekjum. Í þeim lið, reyndar ólíkt mörgum skattahækkunarmálum ríkisstjórnarinnar, er það viðurkennt í frumvarpinu að skattar hafi áhrif. Það er alveg nýtt. Við höfum yfirleitt heyrt frá þessari ríkisstjórn að skattar hafi engin áhrif. Það er reyndar ný hagfræðikenning sem kannski ekki margir eru sammála, en þessu hefur verið haldið fram. Í þessu tilfelli hafa skattar áhrif á háskólann eða eins og segir í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Happdrætti Háskóla Íslands mun að óbreyttu greiða fjármagnstekjuskatt af vöxtum af fjármunum sem til stendur að stofnunin láni Fasteignum Háskóla Íslands ehf. í stað þess að leggja þá til Háskóla Íslands. Þar sem ekki stóð til að Háskóli Íslands yrði í verri stöðu fjárhagslega en hann var fyrir er lögð til sú lagabreyting að Happdrætti Háskóla Íslands verði undanþegið staðgreiðslu og tekjuskatti af fjármagnstekjum.“
Mig langaði bara að impra á þessu og vona, forseti, að aðilar stjórnarmeirihlutans taki þetta til sín til þess að muna það að skattar hafa áhrif. Og það er ekki bara að skattar hafi áhrif á háskólann eða þá sem meiri hlutanum er vel við. Þeir hafa áhrif á alla, bæði hækkun og lækkun á sköttum.
Svo er hér verið að samþykkja heimildir til handa ríkisskattstjóra til að afla gagna og deila þeim með skattyfirvöldum í öðrum löndum, sem og að beita dagsektum í ákveðnum tilfellum. Ein breytingin snýr að réttindum þeirra sem fluttu til Bretlands fyrir lok aðlögunartímabilsins í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þessi breyting er í samræmi við úrskurð yfirskattanefndar í tilteknu máli og verið að tryggja fólki réttindi. Þetta er ágætt. Það er ekki allt slæmt í þessu frumvarpi.
Í II. kafla þessa bandormsfrumvarps eru breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Fyrsta breytingin á þeim lögum er um álag á vanskilafé og verið að skipta út orðinu „álag“ fyrir dráttarvexti þar sem það á við. Skýringin er sögð vera vegna þess að eðlismunur sé á álagi sem telst til refsikenndra viðurlaga og vaxta sem reiknast af ógreiddri peningakröfu. En í þessu samhengi er kannski rétt að benda á að engin breyting er gerð á álagi í staðgreiðslu. Þótt við séum að fjalla um þann lagabálk þá er ekki snert á álagi á staðgreiðslu.
Í dag er það þannig að fyrir hvern dag er 1% álag í sekt af upphæð vanskilafjár og það í allt að tíu daga þannig að álag fyrir að greiða staðgreiðslu tíu dögum of seint getur numið 10% af vanskilaupphæðinni. Eftir það eru greiddir dráttarvextir. Þannig að ef fyrirtæki skuldar 10 milljónir í staðgreiðslu og borgar tíu dögum of seint þá er það 1 milljón í vanskilaálag í ríkiskassann. Það er eitthvað sem mætti spyrja sig hvort sé eðlilegt. Er gætt að meðalhófi yfirvalda gagnvart borgurum og fyrirtækjum landsins með beitingu svona hárra sekta? Þetta samsvarar 365% vöxtum á ársgrundvelli. Það er margfalt á við það sem smálánafyrirtæki rukka í vexti og eru sennilega hærri vextir en þú myndir fá hjá okurlánurum. Eru 365% vextir í sekt á ársgrundvelli okurvextir? Er það okurálag? Eða finnst fólki það sanngjarnt til að passa upp á að Skatturinn fái allt sitt greitt, sé nógu hátt og nógu íþyngjandi til að Skatturinn fái allt sitt greitt? Má Skatturinn hafa allt önnur viðmið en önnur fyrirtæki í landinu? Erum við bara sátt við það, finnst okkur það eðlilegt? Hversu mikið hærra má álagið vera? Sitt sýnist hverjum um það. En þetta frumvarp tekur ekkert á því þó að það taki til orðalagsbreytingar á lagagrein um vanskilaálag.
Svo kemur að breytingum um að miða skuli við markaðsvirði en ekki bókfært verð í uppgjöri vegna erfðafjárskatts. Þessi breyting virðist til komin vegna þess að Skatturinn tapaði máli fyrir yfirskattanefnd. Túlkun Skattsins var því metin röng, frú forseti. Ég velti fyrir mér: Er búið að meta nægilega hver hugsunin var með lagasetningunni á sínum tíma og því mögulega ekki nauðsyn á að breyta lögunum? Eða er tekið beint á móti tillögum frá Skattinum um að breyta lögum eftir að hafa tapað málum fyrir yfirskattanefnd? Ég veit ekki hvort það eigi við í þessu tilfelli en tillögur frá stofnunum að lagabreytingum þarf alltaf að skoða með hagsmuni fólksins í landinu í huga, ekki bara hagsmuni þeirra stofnana sem vilja ná fram breytingum á lögum. Þetta þarf að fara saman. Og það á ekki bara við um Skattinn heldur hvaða stofnun sem það kann að vera.
Svo stendur til að gera eftirfarandi breytingar á lögum um erfðafjárskatt, eins og segir í frumvarpinu, með leyfi forseta: „Land skal þó miða við markaðsverð nema telja megi að mismunur þess og fasteignamatsins sé óverulegur.“ Þarna þurfum við að skoða hvort þetta hangi saman með öðrum lagabreytingum er viðkoma kynslóðaskiptum í búskap. Við viljum væntanlega ekki gera fólki erfiðara fyrir að taka við búi en er í dag. Mögulega var hæstv. ráðherra að ruglast á liðum a og c þegar hann svaraði mér áðan af því að steininn tekur algerlega úr í c-lið 11. gr. um breytingu á lögum um erfðafjárskatt en þar stendur orðrétt í lok greinarinnar, með leyfi forseta:
„Þá skal bæta við verðmæti óefnislegra eigna og réttinda sem metin verða til fjár og gefa af sér arð í framtíðinni en óheimilt er lögum samkvæmt að færa til bókar.“
Ég segi þetta aftur: Sem gefa af sér arð í framtíðinni. Þetta snýr ekki að bókfærðu markaðsverði eins og við áttum orðastað um hérna áðan. Hvað er verið að segja hér? Er verið að segja að það eigi að taka tillit til mögulegs framtíðarvirðis? Það er reyndar ólöglegt að færa það til bókar. Á fólk að gerast spámenn um mögulegan arð í framtíðinni? Sennilega eru allir sem stofna t.d. fyrirtæki að gera það í þeirri von að það myndist arður í framtíðinni. En eins og við vitum þá gengur það aldeilis ekki alltaf eftir. Þetta atriði minnir mig bara á eitt, eins og ég sagði áðan, og það er fyrirtæki sem ber nafnið Enron. Er ráðuneytið að leggja til lagabreytingu um að fólk eigi að taka tillit til mögulegs framtíðarvirðis óefnislegra eigna og borga af því skatta? Hvað ætlar ríkið að gera ef þessi hugsanlegi arður óefnislegra eigna verður aldrei að veruleika? Endurgreiða skattinn af þessum hugsanlega arði? Nei, forseti. Ég held að þetta þarfnist frekari útskýringa.
Reyndar er í þessu frumvarpi einnig verið að gefa Skattinum mjög rúman frest, eða tíu ár, til að endurákvarða erfðafjárskattinn. Ætli þetta ímyndaða framtíðarvirði eigi þá að miða við virði innan þessara tíu ára eða snýst þetta um mögulegan arð af óefnislegri eign um alla framtíð?
Hæstv. ráðherra talaði hér um að óefnislegar eignir Enron hefðu verið metnar á 0 kr. Hvernig ætlum við að útfæra þetta? Hvernig ætlar ráðherra að útfæra þetta? Ég ætla hreinlega að gefa ráðherra það að hann hafi haft mikið að gera, þetta ákvæði hafi komið inn, einhver annar hafi sett það inn og það hafi farið fram hjá honum því að þetta getur ekki staðið svona í landslögum. Við ætlum ekki að endurtaka einhvern Enron-leik hér og samþykkja eitthvað svona frá Alþingi Íslendinga.
Svo er verið að breyta lögum sem voru sett vegna kórónuveirufaralds. Það virðist bara vera saklaus og fín breyting. En í 15. gr. frumvarpsins er breyting á tollalögum þar sem settar verða meira íþyngjandi kvaðir á þá sem selja úr tollfrjálsri verslun. Það gæti orðið flókið fyrir minni aðila á markaðnum og aðila sem vilja komast inn á markaðinn. En einnig eru þrengd skilyrði um stjórnendur og stjórnarmenn sömu fyrirtækja, þ.e. hverjir megi gegna því hlutverki. Tekið er fram að þeir aðilar megi ekki á síðustu fimm árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum. Það er eðlilegt að hafa einhvern ramma eins og í þessu tilfelli, fimm ár eftir dóm. Við hljótum hins vegar að vilja að einstaklingar sem hljóta dóm og taka út refsingu öðlist borgaraleg réttindi sín aftur eftir einhvern eðlilegan tíma. En í þessu frumvarpi segir að stjórnarmenn og stjórnendur megi ekki hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum eða fyrir fíkniefnabrot. Sem sé, þótt viðkomandi hafi tekið út refsingu sína og ákveðinn tími liðinn án þess að viðkomandi hafi brotið af sér, er hann enn dæmdur maður.
Ég velti því fyrir mér hvort þetta hafi verið hugsað nægjanlega. Er ekki eðlilegt að t.d. einhver sem ungur að árum komst í kast við lögin, er búinn að taka út sína refsingu, snúa við blaðinu, öðlist borgaraleg réttindi sín aftur? Ef honum býðst að verða æðsti stjórnandi hjá tollfrjálsri verslun þá þurfi lögin ekki að koma í veg fyrir það? Auðvitað geta verið undantekningar eins og vegna dóma fyrir brot gegn börnum, að viðkomandi megi ekki vinna á leikskólum. En það er ekki verið að ræða það í þessu frumvarpi. Ég held að við ættum ekki að ýta undir að fólk fái ekki borgaraleg réttindi sín aftur. Þetta var ekki svona í þessum lögum en nú er verið að bæta þessu við.
Já, ég er bara búin að ná að fjalla um fyrstu 15 greinar frumvarpsins af 39. Það er margt fleira í frumvarpinu. Ég hélt að fjármálaráðherra ætlaði að vinda ofan af ofsköttun á skemmtiferðaskip sem er að hafa neikvæð áhrif um allt land. En nei, það var bara verið að breyta gjalddaga innviðagjaldsins. Ríkisstjórninni virðist lífsins ómögulegt að tala um skattahækkanir svo þau finna ný orð eða tala í staðinn um minnkun á skattalegum hvötum, minni ívilnanir o.s.frv., jafnvel þó að það eigi ekki við. Í þessu frumvarpi, eins og ég nefndi hér áðan, er minnst á að draga úr skattalegum ávinningi einstaklinga. Er bara hægt að tala um skattalegan ávinning einstaklinga? Ég hef verið mjög hugsi, eftir að hafa lesið frumvarpið, um hvenær gæti verið um skattalegan ávinning einstaklinga að ræða. Er það ef þú færð meira út úr sameiginlegum sjóðum en þú leggur inn eða hvað er átt við, frú forseti? Þetta er endalaust orðagjálfur til að reyna að fegra slæmar ákvarðanir. En hvernig var orðasúpan skattalegur ávinningur einstaklinga notuð í frumvarpinu? Með leyfi forseta, þá segir í frumvarpinu:
„Það að lækka afslátt leigutekna dregur úr skattalegum ávinningi einstaklinga af því að fjárfesta í íbúðarhúsnæði í því skyni að leigja húsnæðið út …“
Frú forseti heyrir hvernig þetta er sett fram á villandi hátt, það er sagt að verið sé að lækka afslátt leigutekna þegar í raun er verið að hækka skatta á leigutekjur um 50%. Svo er gefið í skyn að um einhvern gríðarlegan skattaávinning sé að ræða fyrir einstakling sem leigir út húsnæði. Miðað við orðavalið gæti maður haldið að ríkið sé að borga fólki peninga sem leigir út fasteignir sínar. En það er aldeilis ekki svo. Lög um að einstaklingar greiði lægri fjármagnstekjuskatt af leigutekjum urðu fyrst og fremst til þess að gæta jafnræðis vegna þess að einstaklingar geta ekki dregið frá kostnað og geta ekki afskrifað fasteignir eins og fyrirtæki geta gert. En frumvarpið segir að ætlunin sé að beina sparnaði fólks frekar í aðrar fjárfestingar sem styðja betur við verðmætasköpun.
Ég kemst ekki lengra en ég gæti þurft að biðja um að fara aftur á mælendaskrá. Ég væri áhugasöm um að heyra í hvaða átt stjórnvöld vilja beina einstaklingum til að þeir auki verðmætasköpun.