157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur hennar ræðu, sem raunar benti heldur ekki til mikillar ánægju með mín störf frekar en annarra sem hafa talað á undan henni. Ég hjó eftir einu og það var að ég hefði einhvern tímann fullyrt að skattar hafi ekki áhrif. Ég kannast engan veginn við það og vil spyrja hv. þingmann hvenær ég hef látið það út úr mér, af því það er svo sannarlega ekki mín skoðun. En mig langar til að spyrja sérstaklega varðandi breytingar á fjárlögum og hæla hv. þingmanni fyrir að hafa bent á eitt atriði sem ég held að sé full ástæða til þess að fái umfjöllun í nefnd. Það er að sú meginregla að það að miða við markaðsvirði eigna getur auðvitað skapað mjög erfiða stöðu varðandi ættliðaskipti á bújörðum og ég held að það sé full ástæða til þess að velta fyrir sér hvaða fyrirkomulag þar gæti verið heppilegt. Mig langar hins vegar til að nýta þetta tækifæri til að veita aðeins fyllingu í óefnislegar eignir þar sem hv. þingmaður nefnir ítrekað dæmið um Enron en þar var verið að vísa til svokallaðrar viðskiptavildar. Ég hygg að mjög erfitt væri að leggja mat á hana á nokkurn hátt en það er ákaflega villandi að taka hana sem dæmi um slíkar eignir vegna þess að undir það falla einnig einkaleyfi og hugverkaréttur, sem alls ekki er neitt erfitt að leggja mat á og ganga kaupum (Forseti hringir.) og sölum á markaði á hverjum einasta degi. Ég vil þess vegna benda á að þarna er ekki (Forseti hringir.) verið að hugsa um viðskiptavild heldur frekar um einkaleyfi og hugverkarétt.