157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:04]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Ég sagði nú aldrei beint að ég væri ekki ánægð með störf ráðherra. Ég reyndi meira segja að ýja að því að ég hefði það mikla trú á honum að ég vildi enn þá halda í það sem ég trúi, að hann vilji ekki hækka skatta og fleira upp úr öllu. Ég fór ekki einu sinni svo pent í það að benda á að mögulega væru einhverjir embættismenn, sem vissu að ráðherra hefði mjög mikið að gera og væri nýkominn inn í starfið, sem væru loksins að koma með alls konar mál sem þeir náðu ekki í gegn á fyrri stigum og næðu þeim í gegn. Ég bið hæstv. ráðherra kannski að passa sig sérstaklega á því. Ég sagði reyndar ekki heldur að hæstv. fjármálaráðherra hefði sagt að skattar hefðu ekki áhrif heldur heyrist það frá þessari ríkisstjórn. Ég held að það hefði verið hæstv. forsætisráðherra frekar en hæstv. fjármálaráðherra sem sagði að skattar hefðu ekki áhrif þegar umræðan um veiðigjaldið var hér, mögulega var það atvinnuvegaráðherra. En það er einhvers konar ný hagfræðikenning. Ég þakka fyrir það að hann taki ágætlega undir þetta með bújarðirnar en svo er það þetta með óefnislegar eignir. Mér þykir þetta samt ekki geta staðið eins og það er núna, og við tökum það auðvitað fyrir í efnahags- og viðskiptanefnd. Ef hugsunin er um einhvern hugverkarétt og einkaleyfi þá þarf bara að gera það miklu skýrara hvernig reglurnar um það eigi að vera og hvernig það er metið. Við getum ekki haft þetta svona opið, að fólkið eigi að meta allar óefnislegar eignir um ókomna framtíð. Það getur varla staðist að hafa það svo opið.