skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég þakka svar hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur þar sem hún segist ekki gagnrýna mig en fer strax í að gagnrýna mig fyrir það að gæta mín ekki nægilega á embættismönnum. Kannski er ég eitthvað viðkvæmur en ég get ekki túlkað það með öðrum hætti, en ég lofa hér að gæta mín vel í mínum störfum. Ég er alls ekki sammála hv. þingmanni um það að ekki sé hægt að verðmeta einkaleyfi og hugverkarétt á grundvelli þeirra tekjustrauma sem þau skapa og ekkert óeðlilegt að slík réttindi séu metin. Markaðsverð slíkra eigna er að jafnaði metið út frá tekjustreyminu til einhverrar framtíðar, sem er iðulega gert, enda ganga þessi réttindi kaupum og sölum á markaði. Vel má vera að það sé ástæða til að hnykkja á því en ég tek ekki undir að þarna sé vísað einungis til, eins og ég segi, óefnislegra eigna eins og viðskiptavildar sem eðli málsins samkvæmt yrði sennilega ákaflega erfitt að verðmeta ef það er yfir höfuð hægt vegna þess að þarna undir eru miklu fleiri og miklu meira áþreifanleg réttindi.