skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég verð sennilega bara að taka það á mig að ég er að gagnrýna hæstv. ráðherra fyrst hann leggur þetta mál fram, hver sem uppruninn er. En ég ítreka aftur: Þá þarf það að standa að þetta snúist ekki bara um allar óefnislegar eignir heldur um hugverkaréttindi. Ég get alveg tekið undir að kannski sé hægt að reikna það út miðað við eitthvert tekjustreymi sem er í dag en núna stendur þetta þannig að alls konar mál í líkingu við viðskiptavild falla þarna undir. Það var það sem gekk ekki upp hjá Enron þannig að ég er enn þá á því að það þurfi að breyta því. Hæstv. ráðherra hugsar kannski hvernig þeir vilja hafa skattlagningu á þeim óefnislegu eignum sem hann tilgreinir.