skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að víkja að nokkrum atriðum í þessu frumvarpi sem gengur undir nafninu bandormur. Þetta er hefðbundinn bandormur um breytingu á ýmsum lögum og er til viðbótar við þingmál sem er alla jafna lagt fram á haustin með málsnúmeri 2 og kallast líka bandormur. Þannig að þetta er annar bandormur ríkisstjórnarinnar sem kemur hérna inn svolítið seint, myndi ég segja, ef ætlunin er að hafa áhrif á fjárlög næsta árs.
Það eru auðvitað margar breytingar sem ég vænti að hv. efnahags- og viðskiptanefnd fari rækilega yfir. Ég vil sem sagt víkja að örfáum atriðum sem blöstu við mér þegar ég las hratt yfir þetta frumvarp sem var lagt fram seint á föstudaginn, fyrir nokkrum dögum. Ég átti ágætan orðastað við hæstv. fjármálaráðherra eftir framsögu hans um hér tvö atriði. Ég vil árétta það hér að ég fagna breytingu sem gerð er með 2. gr. a í frumvarpinu, þar sem frítekjumark barna er hækkað og leyfi ég mér að halda því fram að það sé ekki seinna vænna.
Hér er lögð til hækkun á frítekjumarki barna undir 16 ára aldri. Þessi viðmiðunarmörk hafa haldist óbreytt lengi, alveg frá 2013. Það er þannig, eins og staðan er í dag, að börn undir 16 ára aldri geta þénað um 15.000 kr. án þess að þurfa að borga skatta. Með þessari breytingartillögu er gert ráð fyrir að þau geti unnið fyrir 25.000 kr. á mánuði án þess að borga skatta. Nú er það þannig að börn undir 16 ára aldri borga reyndar bara 4% skatt en þau borga þó skatt, þau eru samsköttuð með foreldrum sínum. Í því ljósi að foreldrar bera ákveðnar skyldur gagnvart börnum sínum þá eru börn skattlögð með foreldrum sínum en sérstakar tekjur þeirra bera 4% skatt.
Nú má velta því fyrir sér að auðvitað hefur andrúmsloftið breyst gagnvart vinnu barna og börn í sjálfu sér vinna kannski ekki eins mikið og þau gerðu hér áður fyrr. Þó er það þannig, sem betur fer að mínu mati, að 12, 13 ára gömul börn leitast gjarnan við að fá að spreyta sig á vinnumarkaði. Mörgum þeirra hefur tekist að fá létta vinnu og hafa alveg örugglega einhver þénað umfram 15.000 kr. á mánuði allt árið, jafnvel þó að þau séu í skóla. Ég tók íþróttafélögin sem dæmi hér í andsvörum við hæstv. fjármálaráðherra. Þar hef ég tekið því eftir að starf þeirra er að miklu leyti borið upp af vinnuframlagi ungra iðkenda sem láta reynslu sína ganga áfram til enn yngri iðkenda með því að taka að sér þjálfun yngsta stigsins. Þetta hefur verið ómetanlegur þáttur, held ég, í starfsemi íþróttafélaganna, bæði fyrir þessa ungu iðkendur sem fá tækifæri til að spreyta sig á atvinnumarkaði og læra jafnvel margir hverjir meira í sinni íþróttagrein með því að kenna íþróttagreinina eða hjálpa yngstu iðkendum að stíga sín fyrstu skref, en einnig er þetta ómetanlegt fyrir íþróttafélögin sem mörg hver á hverju hausti hafa stundum átt í erfiðleikum með að manna stöður þjálfara og hafa þess vegna leitað svolítið til yngri iðkenda til að sinna yngstu iðkendunum. Þessir ungu þjálfarar sækja margir, og flestir, þjálfaranámskeið. Það er ekki eins og það sé verið að ýta algerlega óreyndum börnum í þjálfarastarf. Mörg börn hafa lagt mikið undir þegar kemur að þessari þjálfun sem þau taka að sér, þau taka það alvarlega og hafa uppskorið engin há laun en þó þannig að oft og tíðum hefur þetta frítekjumark ekki nýst þeim sem skyldi og þau hafa verið að borga skatta af þessari fjárhæð. Ef aðstaðan væri hins vegar sú að þau nytu persónuafsláttar, eins og allir yfir 16 ára aldri, þá myndu þau ekki borga skatt. Þessir ungu starfsmenn eru oft og tíðum í verri stöðu en þeir sem eldri eru með sambærilegar tekjur.
Ég fagna því að þessi fjárhæðarmörk, sem hafa verið 180.000 kr. yfir árið, verði hækkuð upp í 300.000 kr. og börn geti þá framvegis unnið fyrir 25.000 kr. á mánuði. Ég tel því hins vegar málefnalegt að hækka þetta mark eitthvað, jafnvel töluvert, en a.m.k. eitthvað. Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að skoða þetta mál sérstaklega og leita leiða til að hækka þetta frítekjumark, þ.e. ef menn eru ekki sammála því að börn eigi að fá persónuafslátt. Hæstv. fjármálaráðherra lýsti því í andsvari við mig fyrr að þá kæmu auðvitað alls konar önnur sjónarmið, og ég átta mig á því að það gæti verið tæknilegt úrlausnarefni, en ég tel ekki útilokað að það úrlausnarefni sé einfalt í rauninni. Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að skoða, eða leita a.m.k. svara við því, hvað þyrfti að gera, hverju þyrfti að breyta öðru ef þingið tæki ákvörðun um að veita börnum almennt persónuafslátt þannig að þau stæðu jafnfætis þeim sem eldri eru þegar kemur að sköttum á þessar lágu tekjur sem börn alla jafna hafa.
Svo vildi ég nefna hér annað frítekjumark sem lýtur hins vegar að húsaleigutekjum. Frumvarpið gerir ráð fyrir lækkun á því frítekjumarki. Það hefur verið hingað til 50% en hér er gert ráð fyrir að það hækki í 75%, þ.e. skattskyldur hluti tekna af útleigu íbúðarhúsnæðis hefur verið 50% en hér er lagt til að það hækki í 75%. Þar með er verið að lækka frítekjumarkið og hækka í rauninni skatt á leigutekjur. Skattbyrðin hækkar þannig úr 11% í 16,5%.
Það er ástæða fyrir því að útleiga íbúðarhúsnæðis hefur ekki verið skattlögð með fjármagnstekjuskatti 100%. Það er ástæða fyrir því. Helsta ástæðan er sú að þeir sem eiga aukafasteign, sem þeir kjósa að leigja út og gera það í eigin nafni, hafa ekki tök á að reikna kostnað á móti því sem þeir hafa af útleigunni. Það liggur auðvitað fyrir og er óumdeilt að það að eiga fasteign eru ekki bara réttindi, það eru líka ákveðnar skyldur sem því fylgja. En umfram allt hvílir auðvitað á fasteignaeigendum krafa, sem þeir ættu að setja á sjálfan sig, um viðhald og annað til að tryggja að verðmæti fasteignar rýrni ekki, fyrir utan auðvitað að halda húsnæði í ásættanlegu horfi gagnvart nágrönnum og þess háttar.
Þetta hefur verið ástæðan fyrir því að fjármagnstekjuskatturinn hefur ekki verið lagður 100% á þessar húsaleigutekjur. Ég get ímyndað mér að nái þessi breyting fram að ganga — breyting sem ég held að miði að einhverri óskhyggju ríkisstjórnarinnar um að menn muni þá bara unnvörpum fara að selja þessar fasteignir; þeir nenni ekki að eiga þær og muni bara selja þær og þá verði mikil aukning á framboði á íbúðarhúsnæði á markaðnum og íbúðaverð lækki. Ég held að þetta sé óskhyggja. Ég get miklu frekar ímyndað mér að tvennt sé í stöðunni; annars vegar sá möguleiki að þessir fasteignaeigendur sem eiga eina eða tvær aukaíbúðir stofni félag, það er tiltölulega einfalt, um þessar fasteignir og leigi fasteignirnar þannig út. Þannig getur fasteignaeigandinn talið til rekstrarkostnaðar allan þann kostnað sem fellur til við útleiguna og rekstur á húsnæði og þannig dregið úr skattbyrðinni. Þá verða ekki um auknar skatttekjur ríkissjóðs að ræða af þessari breytingu. Hins vegar tel ég líka mögulegt — sem reyndar er viðurkennt í frumvarpinu og er því ekki haldið fram að þetta sé mögulegt heldur er hreinlega nefnt að það sé líklegt — að leiguverð muni hækka vegna þessara breytinga sem hæstv. fjármálaráðherra er að boða hér í þessu frumvarpi.
Þá velti ég því fyrir mér til hvers refirnir eru skornir hér. Hvert er markmiðið með þessari breytingu? Það er ekki tiltekið nema eitt í þessu frumvarpi sem rökstuðningur fyrir þessari breytingu. Hann er sá að þessir skattalegu hvatar sem menn nefna að kerfið í dag sé — sem ég hef hins vegar nefnt að eru ekki skattalegir hvatar heldur eru málefnaleg rök fyrir þessari ívilnun á fjármagnstekjuskatti — séu til þess fallnir að beina sparnaði fólks í auknum mæli í íbúðafjárfestingu umfram aðra fjárfestingu. Það leiði til hærra íbúðaverðs. Ég er ekki sannfærð um að staðan sé þessi. Munu menn hætta við að kaupa fasteign og kaupa sér hvað, hlutabréf frekar? Eða leggja peninga inn á bók þar sem eru mögulega neikvæðir raunvextir, jafnvel á verðtryggðum reikningum, neikvæðir raunvextir, og láta peningana brenna þar inni?
Ég er ekki að halda því fram að það að kaupa fasteignir til að leigja út sé góður fjárfestingarkostur. Ég held að hann sé það í fæstum tilvikum, það er nú bara mitt mat, einkum og sér í lagi ef tekið er mið af þeirri viðhaldsþörf sem menn verða að taka með í reikninginn þegar menn kaupa slíkar fasteignir. Það er auðvitað ekki alltaf á vísan að róa með leiguverðið, að það haldi uppi slíkum kostnaði. Mér finnst þessi breyting sem hér er lögð til rýr í roðinu hvað rökstuðninginn varðar. Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að skoða þetta mjög gaumgæfilega. Eins og alltaf eiga svona breytingar til að hafa í för með sér einhverjar óvæntar afleiðingar sem eru mögulega neikvæðar eða sem menn hafa ekki reiknað með og breytir það allri sviðsmyndinni.
Virðulegur forseti. Það er í sjálfu sér ekki mikið meira að þessu sinni sem ég ætlaði að nefna hér. Þó vildi ég nefna það, af því að ég heyrði hér umræðu áðan um breytingu á lögum um erfðafjárskatt sem er hérna í frumvarpinu líka, að hún er að mínu mati nokkuð tyrfin, þ.e. það vantar greinargóða lýsingu í greinargerðinni á ástæðum þessara breytinga. Mér sýnist sem svo, þótt það sé bara nefnt einu orði hér, en ég heyrði hæstv. fjármálaráðherra flagga því orði áðan, að það eru hugverkaréttindi; hann nefndi að þessari breytingu væri einkum beint að hugverkaréttindum. Það er reyndar bara minnst á hugverkaréttindi hér einu sinni í öllu þessu frumvarpi og svo eru líka nefndar aflaheimildir. Svo er það líka aflamarkið. Hér hefði þurft að fá miklu greinarbetri lýsingu á ástæðum þessara breytinga sérstaklega. Ég geri líka athugasemdir við það, og hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að skoða sérstaklega, að hér er lagt til að land sem erfist skuli miða við markaðsverð nema telja megi að mismunur þess og fasteignamatsins sé óverulegur. (Forseti hringir.) Ég óttast að hér sé verið að flækja (Forseti hringir.) dánarbúskipti allverulega og hvet nefndina til að skoða þessi atriði, ásamt öllum öðrum lagagreinum hér, ítarlega.