skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Mig langar hér aðeins í stuttu máli að fara yfir þetta frumvarp um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Það er kannski óþarfi að vera að lengja umræðuna um of. Það hafa margir hv. þingmenn komið hér á undan mér og farið yfir þetta í mjög góðu og ítarlegu máli og ég er sammála flestu sem hefur komið fram, þannig að það er kannski óþarfi að vera að fara of djúpt í þetta. Ég hef líka tekið eftir því að hæstv. ráðherra er svona frekar hörundsár gagnvart gagnrýni þannig að ég skal reyna að hlífa honum við því í minni ræðu eins og kostur er.
Virðulegur forseti. Það er margt gott í þessu stóra og mikla frumvarpi og margt sem mun þarfnast betri skoðunar. Ég hef í fyrsta lagi áhyggjur af því hvað þetta frumvarp er seint fram komið. Þetta frumvarp á væntanlega eftir að klárast hér í dag og fer yfir í efnahags- og viðskiptanefnd í fyrramálið þar sem það verður sent út til umsagnar eftir þessa umræðu í dag og hvort sem það fær tvær vikur eða einhvern styttri tíma þá hef ég áhyggjur af því hvað við náum að fara djúpt í þetta ofan í alla aðra vinnu sem efnahags- og viðskiptanefnd er nú að kljást við en vonandi gengur sú vinna vel. Ég hef svo sem engar sérstakar áhyggjur af því að það geri það ekki en það hefði verið ágætt að fá þetta fyrr, en fyrir því eru kannski einhverjar ástæður.
Það sem mér finnst nú helst hér að nefna, svo ég stikli á stóru í gegnum þetta frumvarp, er lækkun á frítekjumarki af leigutekjum. Það er áætlað samkvæmt áhrifamati frumvarpsins, ef ég man rétt, að um 1,6 milljarðar eigi að koma inn til ríkisins í kjölfar þeirrar breytingar. Ef ég man rétt, virðulegur forseti, þá held ég að við höfum séð það einhvers staðar saman tekið að í því fjárlagafrumvarpi sem við erum með og höfum verið að ræða núna í fjárlaganefnd séu skattahækkanirnar metnar á einhverja 28,6 milljarða. Með þessu eru menn að rjúfa 30 milljarða kr. múrinn, sem er nú dágóð tala, verð ég að segja, sérstaklega fyrir ríkisstjórn sem ætlaði ekki að hækka skatta. Ég held að þetta sé eitthvað sem nefndin þarf virkilega að skoða og við þurfum að fá inn aðila sem geta í raun og veru dýpkað skilning okkar á því hvað þetta mun í raun og veru þýða því að það er eitt að hlusta á hv. þingmenn og hæstv. ráðherra sem eru ekki alveg á sama máli um hvað þessi breyting muni leiða af sér hvað varðar t.d. hækkun eða lækkun á leigu. Væntanlega mun þetta hækka leiguverð. Það kemur fram í frumvarpinu sjálfu að líklegt þyki að leiguverð muni hækka, og hæstv. ráðherra var bara mjög heiðarlegur og ég þakka honum fyrir það hér áðan að nefna það, hvort það var 0,1–0,3% inn í vísitöluna en hvort þetta muni hækka verð þurfum við að reyna að átta okkur betur á í nefndinni.
Síðan er hér mál er varðar frítekjumark barna sem sömuleiðis hefur verið umræða um hérna. Ég fagna þessu skrefi, virðulegur forseti. Ég fagna því að við séum komin á þessa leið en ég set spurningarmerki við það hvort við eigum að hafa börnin undanskilin eða setja þau bara í sama kerfi og við hin erum í. En ég fagna því að það sé verið að hækka þessa tölu því að hún var orðin allt of lág og barn síns tíma.
Það var meira hérna sem við þurfum að skoða í nefndinni. Ég nefni Happdrætti Háskóla Íslands sem — þeir heita, virðulegur forseti, ég var að glöggva mig á þessu hérna áðan, Íslandsspil. Íslandsspil hafa gert verulegar athugasemdir en ég skil svo sem rökin. Það verður fróðlegt að heyra þeirra sjónarmið og geta átt samtal við þá aðila inni í nefndinni.
Við þurfum sömuleiðis að fá betri upplýsingar varðandi mat á virði hlutabréfa. Hv. þingmaður Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir fór mjög vel yfir það áðan. Ég deili hennar áhyggjum. Ég ætla ekki að fara neitt dýpra í það en það er ljóst að þar er eitthvað sem við þurfum aðeins að skoða. Ég fagna verndarráðstöfununum en síðan er eitt, virðulegur forseti, sem mig langar að nefna og ég staldraði aðeins við þegar ég fór að lesa í gegnum þetta. Ég skal alveg viðurkenna að ég er ekki fullnuma í þessum fræðum, hvorki varðandi þennan bandorm né einstaka liði hans, en það eru heimildir Náttúruhamfaratryggingar til að innheimta iðgjöld með álagi ef vátryggingarfjárhæð fer upp fyrir tilgreind viðmiðunarmörk. Það er mjög athyglisvert að lesa í frumvarpinu sjálfu, með leyfi forseta kemur þar fram:
„Fimm umsagnir bárust í samráðsgátt vegna ákvæða sem varða breytingar á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, frá Orkuveitu Reykjavíkur, Samorku, HS Orku, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Bændasamtökum Íslands. Í umsögnum kemur m.a. fram að fyrirhuguð heimild stjórnar Náttúruhamfaratryggingar til að hafna eða takmarka vátryggingu sé of opin og geti byggst á huglægum þáttum án skýrra takmarkana. Slíkt fyrirkomulag geti grafið undan grundvallarsjónarmiðum skyldutryggingakerfisins og leitt til mismununar eftir atvinnugreinum eða staðháttum. Þá er bent á að vátryggingar séu grundvallarþáttur í rekstraröryggi fyrirtækja og lykilforsenda fyrir fjármögnun. Ef vátryggingu verði hafnað geti það haft í för með sér að fjármögnun verði ómöguleg eða óhagstæð sem geti haft áhrif á rekstrarhæfi, samkeppnisstöðu fyrirtækja og erlenda fjárfestingu.“
Við erum með fyrirtæki á landsbyggðinni sem eru víða undir alls konar varnargörðum og á hættusvæðum. Ég ætla svo sem ekkert að úttala mig um þennan þátt þessa frumvarps en alla vega er ljóst að sá sem hér stendur þarf að fá betri skýringar á því hvað þetta þýðir raunverulega fyrir þau fyrirtæki sem starfa á slíkum svæðum.
Að öðru leyti ætla ég að láta þetta gott heita um þetta frumvarp að svo stöddu máli og hlakka bara til að eiga samtal um það inni í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég vona svo sannarlega að tíminn muni ekki verða til þess að við þurfum að taka einhverja skemmri skírn um þetta frumvarp en ég treysti hv. formanni nefndarinnar til að stýra því vel og tryggilega og ætla að segja þetta gott í bili um þetta frumvarp.