skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég ætla bara að byrja á því að endurtaka það sem ég sagði áðan. Ég er ekki sérfræðingur í tryggingum né náttúruhamfarasjóði Íslands. Það sem ég benti hins vegar á í minni ræðu var að þetta er eitthvað sem ég held að sé mjög mikilvægt fyrir fulltrúa í efnahags- og viðskiptanefnd að fá aðeins dýpri skilning á, kannski mun dýpri heldur en ég og hæstv. ráðherra getum náð í tveggja mínútna andsvari, þótt slíkt sé klárlega af hinu góða. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt að við skoðum þetta heildstætt eins og hæstv. ráðherra var að tala um. Við búum hér á mjög sérstökum stað, í sérstöku landi þar sem við og kynslóðirnar á undan okkur höfum alist upp og búið við alls konar ógnir, hvort sem það eru skriðuföll eða snjóflóð, stórhríðir og ofsaveður, sjóskaðar, eldgos eða flóð. Þetta er nú bara hinn íslenski raunveruleiki og við þetta þurfa fyrirtækin okkar að búa. Við viljum hafa byggð hringinn í kringum landið og þetta eru því miður aðstæður sem geta skapast á þessum svæðum, mörgum hverjum, og verða reglulega. Það er mjög mikilvægt sem kemur fram í greinargerð frumvarpsins og í athugasemdum frá þessum aðilum, að auðvitað er þessi samtrygging algjört lykilatriði. Þetta samtryggingakerfi sem við vorum svo lánsöm að byggja hér upp er algjört lykilatriði í hvers konar fyrirsjáanleika og öryggi fyrir þessi fyrirtæki til langframa. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að þetta þurfi að vera algjörlega á hreinu og ef við þurfum að fara í heildarendurskoðun á kerfinu þá bara förum við í hana.