157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir svarið og vil ítreka aftur við hann að það var brugðist við þessum ábendingum með því að setja skýr mörk inn í lögin, þannig að þarna er um krónutölur að ræða. 5% greiðsluskylda þýðir að það þarf ekki að uppfæra þau mörk, þau geta staðið. Á endanum snýst þetta um getu sjóðsins til að axla ábyrgð varðandi þann hluta íslenska hagkerfisins sem er ekki í aðstöðu til þess að tryggja sig neins staðar annars staðar. Stór alþjóðleg fyrirtæki hafa möguleika á annarri tryggingavernd sem minni fyrirtæki hafa alls ekki og samfélög og einstaklingar undir engum kringumstæðum. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við tökum þessa umræðu og ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi breyting fari í gegn. Ég held að hún snúist um að verja hagsmuni þeirra sem Náttúruhamfaratrygging var stofnuð til að gæta. Ég held hins vegar að það sé í sjálfu sér alveg rétt að við þurfum síðan að velta fyrir okkur að hvaða leyti upphæðir Náttúruhamfaratryggingar, með því fyrirkomulagi sem hún er með í dag, séu eðlilegar eða hvort annað fyrirkomulag gæti verið hagkvæmara. Fyrirbærið sem slíkt er í mínum huga algjör lykilstofnun. Það er gríðarlega mikilvægt að það sé til. Spurningin er hins vegar hvort hægt væri að veita sömu vernd fyrir lægri upphæð.