157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:41]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir síðara andsvarið. Ég held að við séum bara nokkurn veginn á svipuðum slóðum í þessu, ég og hæstv. ráðherra. Við erum sammála því að tryggingaverndin gegni lykilhlutverki í rekstri þessara fyrirtækja og það er alveg rétt að það eru fjölmörg fyrirtæki sem geta ekki varið sig með öðrum hætti en þarna inni. Eins og ég fór ágætlega yfir í fyrra andsvari mínu eru þær ógnir sem við stöndum frammi fyrir á þessu góða skeri með þeim hætti að slík trygging verður að vera fyrir hendi. Jú, þetta er algjör lykilstofnun eða, hvað skal segja, lykileining í okkar samfélagi. Við verðum að tryggja að hún hafi burði til þess að standa undir hlutverki sínu. Við getum síðan farið og einhvern veginn fabúlerað um það, fyrirgefðu orðbragðið, virðulegur forseti, en auðvitað geta komið upp atburðir af þeirri stærðargráðu að engin trygging geti tekið á því. Við þurfum hins vegar að hafa þetta eins gott og hægt er fyrir fyrirtækin í landinu og ég treysti því bara að við fáum og eigum gott samtal um þetta inni í nefndinni og hlakka til að fá hæstv. ráðherra þangað til að eiga betra, ítarlegra og dýpra samtal við hann um einmitt þennan þátt.