skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Það er auðvitað svo í þessu frumvarpi eins og öðrum að hvorki er það algott né alslæmt. Ég myndi gjarnan vilja byrja á því að taka undir með hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni og því sem kom fram í upphafi hans erindis og varðaði verndarráðstafanir. Þar er vikið að, með leyfi forseta: „Í frumvarpinu er lagt til að bæta verndarráðstöfunum við gildandi ákvæði tollalaga um undirboðs- og jöfnunartolla.“ Ég ætla ekki að fara að lesa þetta upp en í þessari málsgrein er verið að hnykkja, ef ég skil þetta rétt, enn þá betur á valdi hins opinbera til að grípa inn í hratt og örugglega, sem hefur verið skortur á, verður að segjast, í allstórum málum sem hafa skekið íslenskt atvinnulíf að undanförnu.
Eftir að hafa hlýtt á hv. þingmann sem og aðra hv. þingmenn sem hafa farið allvíða í þessu frumvarpi og tekið það allverulega fyrir velti ég fyrir mér lærdómsgetu okkar hér í þessum sal. Í umræðunni síðasta vor og sumar hlustuðum við ítrekað á að skattahækkanir hefðu ekki áhrif. Síðan hafa menn keppst við að gangast við því, bæði í fyrrverandi ríkisstjórn og núverandi, að það hvernig staðið var að hækkun á gjöldum er varða skemmtiferðaskipin hafi vissulega haft áhrif og það engin smáræðisáhrif. Nú stendur til, og ég get farið betur yfir það í seinna andsvari, frú forseti, að endurtaka þann leik. Ég velti fyrir mér lærdómsgetunni og get lánað hv. þingmanni ágætt start á því svari sem varðar boðaða skattahækkun á útleigu íbúða.