157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:45]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Spurt er um lærdómsgetu þingmanna í þessum sal. Þegar ég horfi hér yfir þingsalinn get ég sagt með nokkurri vissu að ég held að lærdómsgeta þeirra sem eru í þessum þingsal núna sé með hærra móti. Hún hefur oft verið lægri, eins í hliðarsölum. En já, allt snýst þetta bara um ákvarðanir og pólitík, virðulegur forseti. Því miður erum við allt of oft að taka hérna ákvarðanir og einhvern veginn lánast okkur illa að horfa til fortíðar og læra af því sem við höfum verið að gera hér, bæði vel og illa og sérstaklega illa. Við erum með eitt dæmi um það núna, sem er t.d. umræðan um vörugjöld á bifreiðar sem er til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd og gengur út á það að taka 7,5 milljarða vörugjöld á næsta ári. Menn hafa bent á það að þegar hækkun varð á nikótínvörum var ákveðin upphæð sem var sett inn í fjárlög og átti að hækka tekjur ríkisins af þeirri aðgerð en það stóðst engan veginn vegna þess að menn fluttu einfaldlega inn birgðir fyrir áramót til þess að sleppa við hækkunina. Það sama virðist vera að gerast núna varðandi vörugjöld af bifreiðunum. Ég held að nú stefni skip að Þorlákshöfn með 2.000-3.000 bíla innanborðs. Þannig að jú, ég tek undir að við þurfum að læra og vera dugleg að meta þær aðgerðir sem við höfum farið í í fortíðinni til að taka betri ákvarðanir í framtíðinni.