157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:50]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hver er stefnan í göngutúrnum? spyr hv. þingmaður. Ég er ekki í honum, ég veit ekki hvert menn eru að fara. Mér var ekki boðið með í þennan göngutúr en fylgist með og hef verulegar áhyggjur af vegferðinni, svo það sé sagt. Ég kom inn á það í ræðu minni áðan að mér telst til að með þessari breytingu séum við að fara yfir 30 milljarða kr. múrinn hvað varðar skattahækkanir í fjárlagafrumvarpi; 30 milljarðar, 30.000 milljónir. Og hver eru það sem eru að fara að borga þessa skatta? Það eru fyrirtækin og fólkið í landinu sem eru að fara að borga þessa peninga. Þetta er verulegt og þetta mun hafa áhrif og þetta er þegar farið að hafa áhrif og allt tal um annað er bara barnaskapur að mínu viti, virðulegur forseti. Þetta mun hækka leiguverð. Það segir sig sjálft. Frumvarpið sjálft segir að þetta muni hafa áhrif til hækkunar á leiguverði að öllum líkindum, enda er það eiginlega augljóst að þegar það er orðið dýrara fyrir þig að leigja út íbúðina þína og þegar kostnaðurinn vegna leigunnar er orðinn hærri fer hann út í leiguverð. Þetta er bara einföld hagfræði. Ég hef ekki trú á því að þetta verði til þess að einstaklingar sem eru að leigja út íbúðir í dag muni í talsverðum mæli fara að selja þær. Ég held að verðið muni bara hækka. Það er bara það sem mun gerast. Það er eina breytingin og ég vona að það sé rétt mat hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu að áhrifin á vísitöluna verði ekki nema 0,1–0,3% vegna þess að við vitum hvað það er sem er að keyra vísitöluna áfram. Það er leiguverðið og við erum að hækka það í þessu frumvarpi.