skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Við ræðum hér í 1. umræðu annan bandorm ríkisstjórnarinnar. Ég treysti því að hæstv. ráðherra sé hér einhvers staðar að hlusta. Ég reyndar hef heyrt á andsvörum hæstv. ráðherra að hann er svolítið hörundsár og finnst fólk ekki hrósa þessu frumvarpi nægilega. Ég veit að það er nóg af stjórnarliðum hér á þingi sem eru ánægðir með sína ríkisstjórn og nota hvert tækifæri til að dásama hennar afköst. En ég auðvitað, eðli málsins samkvæmt, er að velta fyrir mér hvað mætti betur fara og hvað þurfi frekari skoðunar við. Ég ætla að byrja á því að nefna, virðulegur forseti, vegna þess að þetta er bandormur tvö sem mér skilst að við þurfum að afgreiða í tengslum við fjárlögin og þetta fari allt svolítið saman, að ég er enn þá að furða mig á því að hæstv. ráðherra hafi ekki komið með sérstakt mál eða sett það inn í bandorminn um þessa 7,5 milljarða hækkun á vörugjöldum. Þetta er ekkert smá. Það var óútfært í fjárlögunum og svo kom það fram í einhverri umræðu hér í þingsal að þetta væri hækkun á vörugjöldum og mér skilst að komi núna fram í minnisblaði frá ráðuneytinu. Ég ætla því að fá að nefna þetta hér. Ég velti fyrir mér hvort þetta standist þá reglu að slíkar tillögur þurfi að fara í gegnum þrjár umræður því að þetta er engin smáupphæð. En að því sögðu, virðulegur forseti, þá sit ég ekki lengur í hv. efnahags- og viðskiptanefnd þannig að ég er nú kannski að nota tækifærið og benda á það sem ég rek augun í við fyrsta yfirlestur og vænti þess að hv. efnahags- og viðskiptanefnd fari vel yfir.
Mig langar að byrja á að nefna að hér er talað um innviðagjaldið. Reyndar eru það bara einhverjar breytingar á gjalddögum eða einhverju slíku og ég ætla bara að leyfa mér að segja að ég furða mig svolítið á því að það sé ekki gengið lengra í þessum breytingum. Ef ég skil rétt er gert ráð fyrir að lækka gjaldið um 500 kr. á farþega en samt sem áður bara í ár, það er í fyrri bandormi. En svona í ljósi þeirrar umræðu sem skapast hefur um þetta — okkur sem studdum síðustu ríkisstjórn hefur svolítið verið legið á hálsi fyrir að hafa farið í ekki nægjanlega vel útfærðar skattahækkanir sem hafi bitnað hart á ferðaþjónustu og þá sérstaklega skemmtiferðaskipunum og þetta hefur þá sérstaklega áhrif úti á landi. Þá vil ég bara nota tækifærið og segja að það er þörf á því að þingmenn rýni það sem kemur frá ráðherrum og tjái sig um það og leggi áherslu á það og vinni þannig í nefnd því að þegar þetta innviðagjald var sett á þá var enginn sem stóð upp í þessum þingsal nema kannski hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sem hafði lengi mótmælt því. Ég furða mig því á því að ríkisstjórnin sé ekki að ganga lengra í því að koma til móts við þessa atvinnugrein í ljósi þeirra orða sem fallið hafa í kjölfarið.
Ég ætla að taka undir það sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fór hér inn á varðandi leigutekjurnar og lækkun á frítekjumarkinu. Ég heyrði orðaskipti ráðherra og hv. þingmanns hérna áðan og ég skil alveg það sem hæstv. ráðherra velti upp, þ.e. að þetta geti ekki annars vegar haft áhrif á framboðið og hins vegar á verðið, það sé öðru hvorum megin. En þá spyr ég bara: Hvorum megin er gott? Ég hélt að markmiðið væri að auka framboð á íbúðum, það væri stóra málið, og að reyna að koma í veg fyrir hækkun á leigutekjum þannig að ég get ekki betur skilið en að þessi aðgerð hafi ekki þau áhrif heldur þveröfug. Mér heyrðist hæstv. ráðherra viðurkenna hér í andsvörum að það væri svo sannarlega þannig. Ég ætla að biðja þingmenn sem sitja í hv. efnahags- og viðskiptanefnd að skoða þetta sérstaklega. Ég er líka að velta fyrir mér hvaða áhrif þetta getur haft á þróun á framboði leiguhúsnæðis til lengri tíma litið. Er hætta á að þessi aðgerð dragi mögulega úr nauðsynlegu viðhaldi og verði þess valdandi að hér verði íbúðarhúsnæði illa viðhaldið og það sé þá frekar leiguhúsnæði þannig að þeir sem minna hafa á milli handanna og neyðast til að leigja búi kannski í, eigum við að segja heilsuspillandi húsnæði eða húsnæði sem fær ekki nægjanlegt viðhald? Gæti það orðið afleiðing af þessari aðgerð? Ég held að það sé mjög mikilvægt að löggjafinn velti því fyrir sér. Við þurfum að velta fyrir okkur öllum afleiðingum sem aðgerðir okkar kunna að hafa.
Það sem ég kannski hnýt einna helst um er 11. gr., varðandi erfðafjárskattinn. Það er fjallað um það á bls. 3 og ég geri ráð fyrir því að efnahags- og viðskiptanefnd þurfi að fara sérstaklega yfir þetta og ég vona líka að umsagnaraðilar horfi svolítið í þetta. Ég óttast að þetta sé eitt af þessum málum sem gætu farið fram hjá fólki og það átti sig ekki á öllum áhrifunum. Með leyfi forseta, þá segir í síðustu málsgreininni í c-lið 11. gr.:
„Þá skal bæta við verðmæti óefnislegra eigna og réttinda sem metin verða til fjár og gefa af sér arð í framtíðinni en óheimilt er lögum samkvæmt að færa til bókar.“
Virðulegur forseti. Það slær mig mjög einkennilega að það sé óheimilt að færa þetta til bókar, við viljum ekkert að þær séu metnar sem eignir en samt sem áður ætlum við einhvern veginn að taka skatt af því. Í athugasemdum um 11. gr. í greinargerðinni eru t.d. hugverkaréttindi nefnd sérstaklega. Ég velti fyrir mér: Hvað erum við með þessu að segja? Tökum sem dæmi tónlistarmann sem er mögulega búinn að setja réttindi sín í ehf.-félag og fær töluverð stefgjöld vegna þess að tónlistin er vinsæl akkúrat í dag. Þetta er ekki metið til fjár í efnahagsreikningi viðkomandi félags en ætlar Skatturinn samt að ákveða, ef þessi ágæti tónlistarmaður fellur frá, að erfingjarnir eigi að borga erfðaskatt í samræmi við eitthvert mat Skattsins? Það kann að vera að hæstv. ráðherra sé búinn að hugsa fyrir þessu öllu og embættismennirnir í ráðuneytinu hafi við þessu svör. En ég verð að segja að ég get alla vega ekki lesið skýr svör úr greinargerðinni hvað þetta varðar. Þá velti ég líka fyrir mér: Er þá munur þarna, ef við höldum okkur við tónlistarmanninn sem dæmi og höfundaréttarvarið efni, eftir því hvort viðkomandi hefur stofnað hlutafélag eða ekki hvernig erfðafjárskattur er greiddur af þeim hugverkaréttindum sem undir eru? Er sanngjarnt að ætlast til þess að erfingjar eigi að punga út einhverjum fjármunum í erfðafjárskatt á einhverjum tímapunkti? Ég bara velti þessum pælingum upp. Landeignir eru líka teknar þarna til og mögulega kom einhver annar inn á þessar pælingar, ég heyrði ekki allar ræðurnar. Okkur hefur verið mjög umhugað um það að bújarðir geti flust áfram til ættingja. Okkur er flestum umhugað um að það sé léttara en ekki að taka við slíkum rekstri og bent hefur verið á ýmsa vankanta hvað það varðar. Þegar hér er gert ráð fyrir því að markaðsverð í stað fasteignamats eigi að gilda til greiðslu erfðafjárskatts þá velti ég fyrir mér hvaða áhrif það hefur og hver eigi að gera það mat. Hér segir í greinargerðinni, með leyfi forseta: „Liggi markaðsverð ekki fyrir má byggja á mati sérfróðs aðila, svo sem löggilts fasteignasala.“ Þá veltir maður fyrir sér hversu mikil völd við erum að færa yfir til Skattsins í því hver velur þann fasteignasala. Ef bújörð við hliðina á hefur verið seld fyrir einhverjum árum síðan og kannski farið á háu verði vegna þess að gæði þess lands voru metin með þeim hætti eða bara vegna þess að það var einhver auðkýfingur sem hafði áhuga á að kaupa land og var tilbúinn að punga miklu út, er þá réttlátt að erfingjar á landinu við hliðina á greiði háa erfðafjárskatta til þess einfaldlega að taka við þessu landi? Og verður mögulegt að gera það fyrir venjulegt fólk? Ég nota af ástæðu orðið „venjulegt“ fólk því að það var nú þannig að þessi ríkisstjórn fór fram með það loforð að hér stæði ekki til að hækka skatta á venjulegt fólk. Ég held samt að það sé alveg venjulegt fólk sem fái arf. Ég held að þú sért ekki endilega óvenjulegur ef svo ber undir.
Ég vænti þess, virðulegur forseti, að efnahags- og viðskiptanefnd þurfi að fara alveg sérstaklega yfir þessa þætti og vænti þess að þegar þetta mál kemur hér aftur inn í þingsal þá sé tekið í nefndaráliti vel á þessum vangaveltum sem hafa verið hér uppi í umræðunni. Að því sögðu þá er það oft þannig með svona bandorma að það getur verið erfitt fyrir þingmann að grafa sig ofan í hvern einasta lið því að þetta eru oft breytingar á ýmsum lagabálkum. Ég vænti þess líka að hv. efnahags- og viðskiptanefnd fari vel yfir þetta því að okkur á að vera orðið ljóst hvað breytingar á skattkerfinu okkar geta þýtt. Það þýðir ekki alltaf að reyna að kreista út auka krónur og aura fyrir ríkissjóð með einhverjum smávægilegum breytingum. Það hefur alltaf einhver önnur áhrif líka. Ég hygg að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sé meðvitaður um það. Þótt hann láti stundum að því liggja að áhrifin séu minni þá hygg ég að hagfræðingurinn, hæstv. ráðherra, sé mjög meðvitaður um að auðvitað hefur þetta allt saman áhrif.