157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta andsvar. Ég held að það sé ágætt að við náum að hreinsa aðeins loftið hérna því að ég hef tekið eftir því að hæstv. ráðherra veltir þessu fyrir sér. Sú sem hér stendur er ekkert viss um að þetta hafi einhver umfangsmikil áhrif á fasteignamarkaðinn, klárlega ekki til góðs, en mögulega neikvæð. Vegna þess að þetta er hluti af aðgerðum ríkisstjórnar í svokölluðum húsnæðispakka, þar sem ríkisstjórnin er að lofa því að hún ætli að gera eitthvað fyrir fólkið í landinu og bregðast við vanda sem er uppi á húsnæðismarkaði, þrátt fyrir að hæstv. ráðherra hafi áðan sagt að nefnilega nákvæmlega það sem hefur áhrif á þennan markað séu framboð, eftirspurn og lánskjör. Ég held því að aðalgagnrýni okkar stjórnarandstæðinga lúti einmitt að því hvað hæstv. ríkisstjórn sé að gera í því sem raunverulega hefur áhrif á markaðinn, framboð, eftirspurn og lánskjör. Þetta hérna er ekkert af þessu. Mögulega metur hæstv. ráðherra það sem svo að þetta hafi engin áhrif nema til mögulegrar tekjuhækkunar ríkissjóðs. Þá komum við aftur að áhugaverðum orðskýringum ríkisstjórnarinnar þegar kemur að skattahækkunum, að nota alls konar orð eins og leiðréttingu og sanngirni og að afnema undanþágur og aðhald á tekjuhliðinni og eitthvað slíkt. Kannski er þetta bara svoleiðis aðgerð. En í guðanna bænum, virðulegur forseti, þá á hæstv. ríkisstjórn ekki að markaðssetja þetta sem einhvern hluta þessa húsnæðispakka því þetta er, eins og hæstv. ráðherra sagði svo skýrt hér áðan, hvorki að fara að hafa áhrif á aukið framboð né á lánakjör, nema síður sé.