157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[19:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur skemmtilega lifandi svar en vil kannski leyfa mér að vera varfærnislega ósammála hv. þingmanni með að fjárfestingarvæðing íbúðarhúsnæðis hafi tvenns konar neikvæð áhrif. Í fyrsta lagi er hún líkleg til að hafa mest áhrif á minnstu eignirnar, sem eru jú þær sem fólk byrjar jafnan á að kaupa, og draga úr fjárfestingum í atvinnuuppbyggingu, sem hefur bara almenn neikvæð áhrif, þannig að ég deili ekki skoðun hennar. En mig langar til að koma að öðrum punkti hér sem varðar óefnislegar eignir. Ég átti hér orðastað við hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur áðan um þetta efni. Ég velti því fyrir mér og langar til að fá skýrt svar hv. þingmanns um það hvort hún telji að óefnislegar eignir, eins og einkaleyfi og hugverk, eigi þá ekki að meta á markaðsverði, eins og yfirleitt er miðað við í öllum uppgjörum erfðamála, og hvort hún telji ekki nokkra hættu á því að leggja að jöfnu eign sem skilar tekjum einu sinni og eign sem skilar tekjum yfir lengra tímabil og hvort það muni ekki leiða til skringilegs mats á ólíkum eignum.