skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Og jú, ég held að það beri að skilja þessa aðgerð ríkisstjórnarinnar á þann veg, miðað við svar hæstv. ráðherra, að þetta snúist um að beina fólki sem á einhverja fjármuni frá því að kaupa steypu og í það að fjárfesta á hlutabréfamarkaði. Ég ætla alveg að taka undir það að það megi vera með hvatningu til fjárfestinga á hlutabréfamarkaði og ég fagna því skrefi að framlengja skattafsláttinn fyrir það. En ég hef efasemdir um hina leiðina, sérstaklega í ljósi þess að þetta er markaðssett sem einhver húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar. Ég held að hæstv. ráðherra viti það jafn vel og ég að þetta mun ekki hafa nein áhrif þar að lútandi.
Hæstv. ráðherra spyr mig um þær vangaveltur sem ég hafði um þessar óefnislegu eignir og ég skil alveg vandkvæðin. Ég skil alveg þann vilja okkar að það sé bara eðlilegt að skattur sé sanngjarn hvað það varðar ef þarna er um einhver réttindi að ræða. En það er samt sem áður eitthvað bjagað við það, og ég bið þá sem sitja í hv. efnahags- og viðskiptanefnd að skoða það, að á einni síðunni segi ríkið: Nei, þú mátt ekki meta þetta sem eign. Það má ekki færa þetta sem eign í efnahagsreikning fyrirtækisins en þegar kemur að því að einhver lætur lífið sem á þessa óefnislegu eign þá ætlum við samt að skattleggja hana. Það er kannski það sem ég er að velta hér upp, að það sé skrýtið. En stóra spurningin mín er þessi: Hvernig á að meta þetta og hvernig getur það einhvern veginn verið sanngjarnt? Hvaða verkefni erum við að fela Skattinum með því?
Ég nefni hér dæmi, það eru örugglega nokkrir vinklar á þessu: Hugverkaréttindi, ég meina, er alltaf hægt að leggja mat á virðið? Gæti það farið svo að Skatturinn myndi leggja mat á það? Heyrðu, hér eru veruleg verðmæti sem þú ert að erfa eftir karl föður þinn sem var listmálari eða rithöfundur og við metum það sem svo, vegna þess að hér hafa komið tekjur af hugverkum, að þannig verði það næstu 20 árin. Ættingjar eru þá krafðir um að greiða af því erfðafjárskatt og svo bara raungerist það ekki á næstu árum eða fólk hefur ekki efni á því að borga erfðafjárskatt af því að hafa erft einhver hugverkaréttindi frá foreldrum sínum. Og hvað á þá að gera? Neyðist fólk þá til að selja til að geta borgað skatt til ríkisins? Þetta eru vangavelturnar sem ég hef og ég held að hv. efnahags- og viðskiptanefnd þurfi að fara vel yfir það.