157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil koma hér upp og taka undir orð hv. formanns Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnar Hafsteinsdóttur, um að málið er grafalvarlegt. Við fáum af því fréttir núna rétt fyrir hádegi. Hvernig hafa Norðmenn brugðist við? Það er nú ágætt að þeir eru með okkur í þessu máli. Cesilie Myrseth, viðskipta- og iðnaðarráðherra frá Verkamannaflokknum, hefur tilkynnt að ríkisstjórnin muni þegar halda fund um málið í dag með hagsmunaaðilum sem eru í þessum geira vegna þess að þetta er auðvitað risamál fyrir Noreg og okkur líka. Þetta er mál sem er í raun ekki pólitískt. Við ættum öll að geta sameinast um það að leggjast á árarnar í þessu og spyrna við. En það þarf að sýna ákveðna festu og reyna með einhverjum hætti að leiða þetta mál til betri lykta.