157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:39]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir þessum lið, fundarstjórn forseta, til að vekja athygli á því að formaður utanríkismálanefndar hefur þegar kallað eftir því að utanríkismálanefnd komi saman og fái á sinn fund utanríkisráðherra til að fara yfir stöðu mála. Líkt og við sjáum í fjölmiðlum hafa ráðherrar þegar tjáð sig um að þessi niðurstaða er mikil vonbrigði og við teljum hana brjóta á anda EES-samningsins sem á að tryggja opinn markað fyrir okkur inn á evrópskan markað. Þessi viðskiptasamningur skiptir, eins og við öll hér sem erum ábyrg í stjórnmálum vitum, Ísland og íslenska hagsmuni gríðarlega miklu máli. Ég tel afar mikilvægt, og ég tek í rauninni undir þau orð sem komu hér frá formanni Sjálfstæðisflokksins, að við stöndum saman í því að standa vörð um íslenska hagsmuni. Við notum ekki svona alvarlegt mál til að reyna að slá einhverjar pólitískar keilur í öðrum málum þar sem við erum ósammála.