verndartollar ESB á kísilmálm.
Frú forseti. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson kemur í pontu undir liðnum fundarstjórn forseta og varar við því að þetta grafalvarlega mál sem hér er upp komið verði ekki nýtt til að slá pólitískar keilur eða blandað saman við önnur mál er varða Evrópumálin.
Frú forseti. Það er akkúrat það sem þetta mál snýst um. Það er því miður, eins sorglegt eins og það er, að raungerast það sem margir þingmenn hér inni hafa varað ítrekað við, þ.e. að hagsmunir Íslands séu ekkert hafðir að leiðarljósi í þessu samstarfi. Það er ekkert annað hægt, hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, en að blanda þessum málum saman. Þú tekur ekki þessa niðurstöðu út fyrir sviga, aðildarviðræður að ESB í annan sviga, bókun 35 í þriðja svigann o.s.frv. Þetta er allt saman spurning um samskipti við Evrópusambandið og svona eru þau að ganga í dag þrátt fyrir EES-samninginn.