verndartollar ESB á kísilmálm.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka undir það sem sagt hefur verið hér um málflutning formanns Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, um mikilvægi þess að við stöndum öll vörð um stöðu okkar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Við getum valið ýmsar leiðir. Við getum valið að karpa og þræta um þær réttarbætur sem við eigum hér fyrir höndum á Alþingi sem varða m.a. rétta innleiðingu samningsins hér, eða við getum tekið föstum höndum saman og hafið nýja tíma í íslenskri hagsmunagæslu innan Evrópska efnahagssvæðisins. Það er mér hyggilegri kostur. Hvað sem öðru líður snýst Evrópusamstarf um íslenska hagsmunagæslu, númer eitt, tvö og þrjú. Þjóðin á svo sannarlega rétt á því að koma inn í það samtal og veita okkur áframhaldandi umboð í hvora áttina sem er. En látum þetta ekki tvístra okkur. Nú er lag að skoða hvaða réttarúrræði standa okkur til boða. En við skulum gera það fyrir íslensku þjóðina að standa saman hnarreist fyrir íslenskum hagsmunum.