157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:53]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Tíðindi dagsins eru á þann veg að það hlakkar ekki í manni, við getum sagt það. En ég vil byrja á því að taka undir orð formanns Sjálfstæðisflokksins hvað það varðar að við erum öll saman í þessu. Það eru hagsmunir Íslands sem eru undir og við verðum að skilja eftir einhverja flokkapólitík og annað því að ég held að okkur veiti ekki af því hér inni að standa saman og verja hagsmuni Íslands númer eitt, tvö og þrjú. Það er staðan sem við stöndum í. Við verðum öll að fara þann veg því að öll okkar framleiðsla er undir meira og minna hvað þetta varðar; iðnaðurinn, sjávarútvegurinn, útflutningsgreinarnar okkar. Það er allt undir og við verðum að standa saman hér inni til þess að ná fram öllum þeim hagsmunum sem Ísland á skilið í þessum samningi.