verndartollar ESB á kísilmálm.
Frú forseti. Þetta eru mikil tíðindi sem berast til okkar í dag eftir þessa atkvæðagreiðslu í Brussel í morgun. Það er mikilvægt, eins og hefur komið fram í þessari umræðu, að við séum saman í þessum báti í þessari baráttu. Það sem kemur gríðarlega á óvart í þessu máli er að Evrópusambandið lítur raunverulega út eins og tvíhöfða þurs. Það er annars vegar í þessu máli, svo hins vegar í varnar- og öryggismálum. Það virðist ekkert vera neitt samtal þar á milli. Það er verið að rjúfa aðfangakeðjur innan Evrópu, innan NATO, og það er ótrúlegt að sjá þessi vinnubrögð. Nú held ég að sé orðið ljóst að það verður fróðlegt að fá upplýsingar um það hvaða þjóðir voru á okkar bandi í þessu máli og hverjar ekki. Mér skilst að NB8 hafi verið okkar megin. Ég trúi ekki öðru en að Þýskaland hafi verið okkar megin. Það eru gríðarlegir hagsmunir í Þýskalandi að þessar aðfangakeðjur rofni ekki. Allt þetta mál er með hreinum ólíkindum og maður trúi varla að við séum komin í þessa stöðu á þessum tímapunkti, a.m.k. við sem höfum verið þeim megin (Forseti hringir.) að það væri nauðsynlegt að verja þennan viðskiptasamning sem hefur haft gríðarleg áhrif á íslenskt samfélag í 30 ár. Nú veit ég ekki hvert Evrópusambandið (Forseti hringir.) og meiri hlutinn eru komin í þessu máli.