verndartollar ESB á kísilmálm.
Forseti. Hér er gefið í skyn að einhverjir hafi ekki stutt EES-samninginn. Ég hef stutt EES-samninginn en vissulega hafa hér orðið vatnaskil, algjör vatnaskil. Þá er augljóslega ekki vænlegt að fara að ýta okkur inn í Evrópusambandið á þessum tíma. Það er talað um að það sé betra að fara lengra inn í sambandið til að eiga sæti við borðið. En það mátti sín lítils þegar Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin voru að tala okkar máli. Þau eiga sæti við borðið. Og hvernig gekk það? Það gekk ekki neitt. Ég held að leiðin núna sé ekki að fara í áttina að Evrópusambandinu heldur að ná áttum. Það væri líka gott ef við kæmum með lausnir fyrir kísilframleiðendur sem þurfa að vinna undir regluverki Evrópusambandsins en mega ekki standa jafnfætis á innri markaðnum.