Störf þingsins.
Forseti. Eins og við fórum yfir áðan eru þetta sláandi upplýsingar sem berast okkur í dag. Mig langaði því hérna undir liðnum störf þingsins að ræða hvernig við ætlum að haga störfum þingsins á næstunni. Ætlum við að láta eins og ekkert hafi gerst eða ætlum við að staldra við, ná áttum en grípa til grunnaðgerða — sem eru kannski hvað? Við getum alveg beðið nokkra daga með að setja Evrópusambandsreglugerðir hérna inn í þingið. Þær þurfa ekki að koma í dag eða á morgun. Ég held að fyrsta skrefið væri að setja þær til hliðar. Svo held ég að við ættum að sameinast hérna inni og, eins og hæstv. ráðherra Inga Sæland myndi segja, taka fyrst utan um kísilframleiðendur. Við getum öll sameinast um það. Hver er lína Alþingis Íslendinga gagnvart þeim núna? Er það að láta þá vera undir íþyngjandi regluverki Evrópusambandsins sem kemur svona fram við kísilframleiðendur eins og gert var í dag? Er það það sem við ætlum að gera? Eða ætlum við hérna að sýna að við séum ekki bara opinber stofnun sem hreyfist mjög hægt og grípa frekar til aðgerða án þess að ég sé að tala um að grípa til einhverra aðgerða í einhverri örvæntingu? Það er allt í lagi að grípa til aðgerða til að sýna að þetta er ekki í boði, að koma svona fram, og þá þurfum við að bregðast við með einhverjum hætti. Það held ég að við ættum að gera. Ég held að forseti Alþingis ætti eftir störf þingsins að gera hlé á þingfundi og hér ættu að fara fram fundir í nefndum þar sem samtalið er tekið um hvert við viljum stefna þessa vikuna. Það er það sem ætti að gerast og hæstv. ráðherrar ættu auðvitað að koma fyrir sínar nefndir og taka samtalið um framhaldið, bara þessa viku til að byrja með.