Störf þingsins.
Frú forseti. Í svari við fyrirspurn minni til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrr í haust kom fram að síðustu átta árin hafi árlega 18.000 milljónir runnið úr ríkissjóði til loftslagsmála og að gert sé ráð fyrir að á næstu árum, eða til 2029, munu útgjöld til þessara mála fara upp í 28.000 milljónir árlega eða samtals á þessu árabili 258.000 milljónir.
Frú forseti. Ég spurði einnig hver helstu verkefnin hefðu verið á þessu sviði og hverjir væru helstu viðtakendurnir. Einnig var spurst fyrir um hver árangurinn hefði verið og hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af ráðstöfun þessara fjármuna. Þarna fengust heldur loðin svör. Í svari við fyrirspurn hv. formanns atvinnuveganefndar nýlega til sama ráðherra var unnt að rekja, frú forseti, 2–3% af þessum gífurlegu fjárhæðum á tveggja ára tímabili.
Frú forseti. Hér er frekari rannsókna þörf. Ég hef nú útbúið fyrirspurn til allra hæstv. ráðherra til að leitast við að komast að því hvernig þessu fé hefur verið varið. Er ekki eðlilegt að þingið og þjóðin fái að vita nákvæmlega hvert þetta fé hefur runnið? Liggur ekki í hlutarins eðli að upplýst verði um hverjir hafa verið viðtakendur þessa fjár? Þegar opinberu fé er varið í tiltekin verkefni er sjálfsagt að gera kröfu til þess að árangur af slíkri ráðstöfun sé mælanlegur. Því hef ég leyft mér, frú forseti, að ítreka spurningar mínar, nú til allra hæstv. ráðherra, um hver árangurinn hafi verið og hvernig hann hefur verið mældur. Þegar um slíkar ógnarfjárhæðir af skattfé er að ræða, frú forseti, (Forseti hringir.) er rétt að gera skýlausa kröfu um að sýnt sé fram á árangur af ráðstöfun fjárins.