157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[14:09]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Söngurinn er byrjaður um sæti við borðið. Þetta er söngur sem hljómar jafnvel verr en Fjólublátt ljós við barinn gerði forðum því að þetta sæti er 0,8% eða ígildi 0,8% þingmanns. Slíkt er vogaraflið sem verið er að sækjast eftir. Það hefði engu breytt varðandi þessa niðurstöðu, engu breytt, enda tjölduðum við, að mér skilst, til öllu sem við áttum. Þetta 0,8% hefði ekki ráðið úrslitum þar um. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum er í sjálfu sér skiljanleg af hálfu Evrópusambandsins. Auðvitað vill Evrópusambandið verja sér markað. Við höfum kallað eftir því sum hér að við gerum það líka og kallað eftir verndartollum vegna félagslegra undirboða. Það hefur gengið hægt að fá viðbrögð við því. En ástæðan fyrir því að Evrópusambandið er að grípa til þessara aðgerða vegna þessara ódýru málma og ódýru vara sem eru að koma inn á markaðinn er ekki vegna þess á hvaða verðlagi vörur eru að koma frá Noregi eða Íslandi, alls ekki. Við höfum alls ekki verið þátttakendur í að keyra niður verðið. Þess vegna er sú ákvörðun Evrópusambandsins að hafa Noreg og Ísland með í þessum aðgerðum — frú forseti, ég biðst fyrir fram afsökunar á orðalaginu — hún er heimskuleg, hún er vond. Hún verður til framtíðar vond fyrir Evrópu. Hún er vond fyrir Ísland eins og staðan er núna þó að ég voni svo heitt og innilega, frú forseti, að okkur takist í framtíðinni að standa betur vörð um okkar hagsmuni hér.