Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú er brátt ár liðið frá því að kosið var til Alþingis og mynduð var ríkisstjórn, ríkisstjórn sem hefur staðið þétt saman og þétt með þjóðinni að vinna að almannahag fyrir fólkið í landinu. Núna er bráðum ár liðið og margt hefur gengið á á þessu fyrsta ári. Á þessu fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar hefur þegar verið ráðist í tiltekt í ríkisrekstrinum, lagður hefur verið grunnur að verðmætasköpun framtíðar og þjóðin fær nú sanngjörn auðlindagjöld af sjávarútvegsauðlind þjóðarinnar. Á þessu ári hefur verðbólga lækkað, vextir hafa lækkað og þó að greiningaraðilum greini á um hvaða ákvörðun verður tekin á morgun, þá er samt samhljómur um það að horfur í efnahagslífinu eru þær að samhliða því að Seðlabankinn hefur haldið úti sinni vaxtastefnu og fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar, þá er að kólna í hagkerfinu. Hvað þýðir það? Það þýðir að nú fara að skapast forsendur til að lækka stýrivexti í landinu, lækka vaxtabyrði heimila, fyrirtækja og sveitarfélaganna í landinu sem geta þá einmitt farið að ráðast í nýjar fjárfestingar og ýta undir verðmætasköpun framtíðar.
Öfugt við fyrri ríkisstjórn, sem skilaði hér að meðaltali 115 milljarða halla í sinni stjórnartíð, er verið að snúa við hallarekstri ríkissjóðs strax árið 2027. Við höfum oft heyrt þann söng að mikið hafi gengið á í efnahagslífinu sem útskýri hallarekstur síðustu ríkisstjórnar en við höfum líka séð það að það eru undantekningartilvik þegar það eru ekki áföll í efnahagslífi þjóðarinnar og við erum vön því að takast á við áföllin. Ég er alla vega þakklátur fyrir það að við stjórnvölinn sé ríkisstjórn sem sýnir ábyrgð en ekki ábyrgðarleysi, að það sé eitthvert plan en ekki panik. Við sjáum það í viðbrögðum við ákvörðun dagsins í dag að það er mikilvægt að vera með öfluga ríkisstjórn sem stendur fast á hagsmunum Íslands og byggir hér upp til framtíðar.