Störf þingsins.
Frú forseti. Í hverju felst íslensk hagsmunagæsla? Hún getur verið ýmiss konar. Hún á sér stað bæði á erlendri grundu og þeirri sem við teljum til okkar heima. Þetta er allt spurning um íslenskt atvinnulíf, íslenskan almenning, hagsmuni venjulegs fólks í þessu landi. Fyrir Ísland er morgunljóst að Evrópusambandið nýtur ekki góðs af því, hvorki til lengri né skemmri tíma, að ýta Íslandi og Noregi til hliðar í EES-samstarfinu, enda erum við sannarlega hluti af evrópskri virðiskeðju. En nú reynir líka á að láta þetta mál ekki slá sig út af laginu. Já, fólk er að snúa þessu á ýmsa vegu, margar sviðsmyndir, við þurfum bara að skella í lás, samþykkja ekki neitt. EES-samstarfið sé ekki jafn hlýr faðmur og áður og þá þurfum við bara að ganga inn eða að við þurfum bara að berjast fyrir gildum okkar og hagsmunum innan EES. Ég segi einfaldlega: Hvað sem öðru líður þá var okkur veitt umboð til þess að spyrja þjóðina, gera upp framtíð okkar innan EES í samráði við hana. Þessu lofuðum við. Við ætlum að standa við það. Það verða aðrir flokkar sem ekki eru sammála því að sætta sig við. Ég er ekkert að gera lítið úr þeirri stöðu sem hefur skapast hér á Evrópska efnahagssvæðinu þegar ég segi: Það verður áfram að vinna að því að draga úr þenslu og beita ríkisfjármálum rétt. Þetta kallar á pólitíska forgangsröðun sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er að beita með markvissri stefnumörkun, með stöðugleikareglu, í atvinnu- og húsnæðismálum. Við þurfum að lækka vaxtastig í landinu því lausn þessarar ríkisstjórnar er, hvað sem öðru líður, ekki bara sú að ganga í Evrópusambandið og halda að þannig lagist þetta allt saman. Innan þessarar ríkisstjórnar eru alls konar skoðanir á því hvernig Íslandi sé best borgið. Lokasvarið verður hjá þjóðinni og við verðum að óska eftir afstöðu hennar og virða hana.