157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[14:18]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég ætla nú að fara inn á allt aðrar línur. Mig langar að ræða um alvöru í öldrunarmálum. Nú er staðan eins og hún er í dag þannig að ekki er hægt orðið að útskrifa einn einasta eldri borgara út af spítala vegna plássleysis á hjúkrunarheimilum. Líkt og kom fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í haust náðist markmið fyrri ríkisstjórnar í þessum efnum engan veginn. Í lok síðasta kjörtímabils voru hjúkrunarrými tæplega 500 færri en gert var ráð fyrir. Meðalbiðtími eftir hjúkrunarrými er 176 dagar og eru um 500 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og 200 einstaklingar eru á biðlistum hingað og þangað út um kerfið. Frá 2019 og út síðasta kjörtímabil fjölgaði hjúkrunarrýmum einungis um 69.

Núverandi ríkisstjórn hefur sett þetta mál í algeran forgang. Gríðarlega miklum áfanga hefur verið náð. Nýlega opnuðu 64 ný rými í Boðaþingi og síðast í haust opnuðu 50 rými á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Bara á þessu ári hefur rýmunum fjölgað um 114. Frá því að félags- og húsnæðismálaráðuneytið tók við uppbyggingu hjúkrunarheimila hinn 15. mars síðastliðinn hafa verið gerðir samningar um 26 hjúkrunarrými í Hveragerði, 80 á Nauthólsvegi, 100 á Akureyri, sex á Húsavík, 66 í Mosfellsbæ og 67 hjúkrunarrými í Sóltúni. Þar að auki er verið að vinna að því að ljúka samningi við nýtt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ. Samtals eru þetta því 550 ný rými sem við erum að fara að ráðast í á næstu tveimur til þremur árum. Ég segi: Áfram þessi ríkisstjórn. Stoppum stöðvunina. Höldum áfram.