Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ný þjóðhagsspá var birt nýverið. Hún sýnir að eftir samdrátt í hagkerfinu í fyrra, áður en skipt var um stjórnvöld, er nú spáð hagvexti á þessu ári og þeim næstu. Þetta gerist þrátt fyrir ýmis áföll sem dunið hafa á efnahagslífinu síðustu mánuði og undirstrikar styrk íslensks hagkerfis og fyrirhyggju ríkisstjórnarinnar. Áætlaður halli árið 2026 er í samræmi við fjármálaáætlun og útgjöld innan marka stöðugleikareglu. Ríkisstjórnin hefur sýnt í verki að hún bregst hratt við þegar þörf er á. Það gerði hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þegar hann tilkynnti að Landsnet muni hraða uppbyggingu nýs tengivirkis á Bakka til að auðvelda tvítengingu Húsavíkur í gegnum svæðið. Það gerði sami ráðherra aftur með undirritun yfirlýsingar um stóraukin umsvif loftslagsvænnar atvinnustarfsemi á Grundartanga í síðustu viku.
Virðulegi forseti. Það er bjart fram undan. Við erum að fara inn í stærsta framkvæmdatímabil Íslandssögunnar. Landsvirkjun og Orkuveitan eru að ráðast í risavaxnar fjárfestingar sem munu vinna á móti hagsveiflunni. Langstærsta fjárfestingarverkefni einkaaðila sem hefur verið ráðist í á Íslandi, uppbygging á umfangsmiklu landeldi, stefnir að því að skapa allt að 220 milljarða kr. í árlegar útflutningstekjur snemma á næsta áratug. Ríki og sveitarfélög hafa boðað miklar innviðafjárfestingar. Nýr risastór húsnæðispakki hefur verið kynntur og annar er á leiðinni. Að auki er loksins unnið að langtímaatvinnustefnu sem miðar að aukinni verðmætasköpun, útflutningi og fjölgun vel launaðra starfa um allt land. Stóra myndin er skýr. Hér eru stjórnvöld sem hafa plan og það plan virkar.