Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil nýta tímann hér til að vekja athygli á stöðu íþróttastarfs um allt land, stöðu sem kallar á samtal og aðgerðir. Íþróttahreyfingin byggir á sjálfboðaliðum sem leggja til ólaunað starf til samfélagsins. Eitt af því sem valdið hefur mikilli óvissu er sú þróun að sjálfboðaliðar í stjórnum félaga eru í auknum mæli gerðir persónulega ábyrgir ef upp koma mistök í rekstri. Hættan er að slíkt geti dregið úr vilja fólks til að taka að sér stjórnarstörf og gefa af sér til samfélagsins. Þessa óvissu þarf að leysa því að án sjálfboðaliða gengur dæmið ekki upp. Samhliða þessu hefur fjárhagslegur þrýstingur aukist á íþróttafélög; verðbólga, launakostnaður, húsnæðisgjöld og rekstrarkostnaður. Fyrir vikið hefur þurft að bregðast við með því að hækka æfingagjöld. Fyrir efnaminni fjölskyldur getur þetta skapað raunverulega hindrun sem veldur því að börn hafa ekki jafnt aðgengi að skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi, raunverulega hindrun að einhverri öflugustu forvörn sem völ er á. Við þetta bætist aukinn ferðakostnaður félaga og foreldra á landsbyggðunum, kostnaður sem ferða- og jöfnunarsjóður ÍSÍ nær ekki að mæta eins og staðan er í dag. Sjóðinn þarf að efla. Í óbreyttu ástandi er misrétti í aðgengi barna að íþróttastarfi eftir búsetu. Einnig þarf að huga að framtíð svæðisstöðva UMFÍ og ÍSÍ sem tengja saman og styðja við íþróttahéruð landsins, efla þátttöku og jafna aðgengi. Til þess ákalls í samfélaginu um aðstoð hefur UMFÍ nú gripið með því að senda líflínu til lítilla íþróttahéraða í fjárþröng. Slíkt er ákallið.
Virðulegur forseti. Íþróttir eru ekki aukaatriði, þær eru lýðheilsumál, forvörn og byggðamál. Því þarf að halda betur utan um stöðu sjálfboðaliða, tryggja framtíð svæðisstöðva og styrkja ferðajöfnunarsjóð ÍSÍ til að tryggja jafnt aðgengi barna um allt land.