157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[14:25]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Evrópusambandið samþykkti í dag að leggja verndartolla á innflutt járnblendi. EES-löndin Ísland og Noregur eru þar ekki undanskilin þrátt fyrir að í gegnum EES-samninginn eigum við að hafa aðgang að innri mörkuðum sambandsins. Í mínum huga er þetta skýrt brot á EES-samningnum. Þetta er skýrt brot á fjórfrelsinu, grunnforsendum samningsins, en aðalmálið er að hér hefur traust verið rofið. Við Íslendingar eigum ekki að taka því léttvægt eða þegjandi. Ég fagna því að búið er að setja á ís undirritun samstarfsyfirlýsingar um öryggis- og varnarmál en ég tel að við þurfum jafnvel að ganga lengra. Ég tel að við þurfum að skoða það hvort við eigum að setja á ís allar EES-innleiðingar sem liggja fyrir Alþingi núna, hvort við eigum að vera að innleiða hér EES-reglur á sama tíma og þetta traust hefur verið rofið á milli okkar og Evrópusambandsins, þar með talin bókun 35. Ég velti því líka fyrir mér hvort við þurfum að skoða aðild okkar að ETS-losunarheimildakvótum Evrópusambandsins í ljósi þessa.

Virðulegur forseti. Hafi einhverjir haldið einhvern tíma að Evrópusambandið væri klúbbur sem við ættum heima í þá held ég að Evrópusambandið hljóti að hafa tekið af allan vafa í dag um að í þessum félagsskap eigi íslensk þjóð ekki heima.