Störf þingsins.
Frú forseti. Ísland og Noregur verða ekki undanþegin verndaraðgerðum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna kísiljárns. Hvernig hefur hagsmunagæslu Íslendinga verið háttað? Um það hefur ríkt trúnaður. Undirritaður hefur fylgst með viðbrögðum frænda okkar Norðmanna í dag frá því í hádeginu. Þar kemur fram að Cecilie Myrseth, viðskipta- og iðnaðarráðherra, segir að ríkisstjórnin muni halda fund um málið strax í dag með fyrirtækjum sem verða fyrir áhrifum og aðilum vinnumarkaðarins. Ætlar ríkisstjórnin íslenska að halda viðlíka fund? Formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, kallar eftir fundi formanna þar sem allir aðilar verði upplýstir um stöðu mála. Vonandi verður hæstv. forsætisráðherra strax við þeirri bón. Nú verður að heyrast í valdamönnum. Harald Solberg, forstjóri Norsk Industri, segir að ákvörðunin veiki mikið það öryggi sem Noregur og Ísland hafa haft í gegnum EES-samninginn. Aðgerðin sé sérstaklega óeðlileg. Þessi norsku og íslensku iðnfyrirtæki eru háð sömu reglugerðum og kostnaðurinn og iðnaðurinn í ESB, segir Solberg. Leiðtogi Miðflokksins, Trygve Slagsvold, segir: Þetta er óþolandi hegðun ESB og stangast á við samninga sem Noregur, Ísland og ESB hafa gert. Nú verður forsætisráðherra að standa með þjóðarhagsmunum Noregs. Ef ESB breytir ekki um stefnu verður ríkisstjórnin að kynna aðgerðir. Ríkisstjórnin má ekki gefa eftir í neinum aðstæðum. Hann telur að ríkisstjórnin verði að íhuga að bregðast við með því að frysta EES-sjóði og leggja útflutningsskatt á raforkuútflutning. ESB hefur kastað grímunni. Það er alveg ljóst að það er enginn annars bróðir í leik. Við sáum það í bankahruninu og Covid-19. Hver hugsar um sig. Nú þarf festu og hugrekki. Norðmenn hreyfa sig hratt. Hvað ætlum við að gera?