Störf þingsins.
Frú forseti. Já, það er óhætt að segja að ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að veita Íslandi og Noregi ekki undanþágu frá verndaraðgerðum vegna kísiljárns er gríðarleg vonbrigði. Nú reynir á samstöðu þjóðarinnar. Það reynir á samstöðu okkar hér inni sömuleiðis. Það eru hagsmunir þjóðarinnar sem eru hér í húfi. EES-samningurinn er okkur mjög mikilvægur. Við skulum ekki hafa það í flimtingum að hér sé hægt að hlaupa til baka eða gera eitthvað annað. Horfum á hlutina bara eins og þeir eru. EES-samningurinn er okkur mikilvægur en við verðum sem þjóð að spyrna við fótum því að það gengur ekki að láta koma svona fram við sig.
Samningurinn, frá því að hann kom til á sínum tíma, hefur fært þjóðinni mikil tækifæri bæði til vaxtar og þróunar. En þrátt fyrir alla þá góðu vinnu sem okkar fólk, undir forystu stjórnvalda og sérstaklega hæstv. utanríkisráðherra, hefur unnið þá er staðan þessi: Við urðum undir í þessari lotu en leiknum er ekki lokið. Það eru margar lotur eftir í þessum leik, frú forseti, ef ég má orða það þannig. Því tek ég undir hér með hv. þm. Jens Garðari Helgasyni, eins og hv. þingmaður orðaði það: Eigum við að velta fyrir okkur öllum þeim innleiðingum sem liggja á borðinu fyrir framan okkur? Eigum við aðeins að hægja á? Eigum við sömuleiðis að velta fyrir okkur bókun 35? Hvað með ETS o.s.frv.? Því að við verðum öll í þessu að velta öllum steinum við og umfram allt verðum við að standa saman (Forseti hringir.) í því að verja hagsmuni þjóðarinnar. Það er númer eitt, tvö og þrjú.